Vandamálagallerí tengt ofnotkun áfengis og notkun fíkniefna er þjóðarmeinsemd.

Samfélagslegur kostnaður vegna vandamála tengdum áfengi og fíkniefnum er gífurlegur og flokkast undir þrjú ráðuneyti félagsmála, heilbrigðismála og dómsmála. Það HLÝTUR að borga sig að vera ætíð í stakk búin með stofnanaúrræðum til þess að takast á við afleiðingar ofnotkunar áfengis og notkunar fíkniefna. Til þess þarf pólítíska ákvarðanatöku um úthlutun fjármuna til þess verkefnis. Verkefnis sem ætti að flokkast sem forvarnaraðgerð í raun þ.e. að takast á við tilkominn vanda hvers eðlis sem er en í þessu tilviki vanda sem hefur tilhneigingu til þess að vinda upp á sig og vaxa með því móti að kosta meira og meira við meðhöndlun á síðari stigum. Að kippa barni út úr heimi fíkniefna áður en barnið vex til fullorðinsára getur verið spurning um nauðsynlegan mannafla að störfum til þess arna á þeim tímapunkti sem aftur kann að skipta meginmáli um framhaldið. Sama máli gegnir um alkóhólistann sem þarf hjálp við sínum vanda, það borgar sig fyrir þjóðfélagið að gera hvað það getur til að forða einstaklingum úr eyðileggingu til sálar og líkama og virkja sem nýtan þjóðfélagsþegn. Helst þarf að útrýma biðlistamenningu í þjónustu á þessu sviði , en við það eitt kynni ýmislegt að breytast til bóta.

kv.gmaria. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég get sagt þér það Guðmundur að fræðsla innan veggja grunnskóla er eins mikil og mögulegt er í því efni og ekki á bætandi þar.

Samfélagsgerðin og tímaleysið sem heimili barnanna eru í við aðkomu að börnum sínum til unglingsára er kapítuli stór kapítuli sem kemur aftur að verðmætamatinu til lengri og skemmri tíma litið. Það vill gleymast að hamingjan verður ekki keypt í formi nógu margra tækja og tóla til afþreyingar meðan mannlegt atæti skortir.

Að spara aurinn en kasta krónunni hefur því miður verið viðtekin venja varðandi það atriði að hafa ekki biðlista í alls konar þjónustu sem lögboðin er innan hins opinbera og því þarf að breyta.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.6.2007 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband