Þjóðarátak GEGN fíkniefnum.

Mummi í Götusmiðjunni var í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag þar sem það meðal annars kom fram að hann sem hefur verið að aðstoða börn á annan áratug hefur aldrei verið kallaður á fund stjórnvalda sem álitsgjafi. Stórfurðulegt barasta. Þetta var annars fróðlegt viðtal við Mumma þar sem hann meðal annars lýsti heimsókn sinni til Bandaríkjanna og aðferðum sem þeir nota sem úrræði við fíkniefnavandamálinu. Þar eru menn dæmdir í meðferð allt niður í 14 ára ef ég tók rétt eftir hjá honum og ef menn vilja ekki meðferð þá er það bara fangelsi sem menn hafa um að velja.0gu Hann lýsti einnig andvaraleysi gegn þessum vágesti sem honum finnst hafa orðið til í þjóðfélaginu og ég er honum innilega sammála í þvi efni. Andvara og umræðuleysi um þessa glæpastarfssemi hentar starfsseminni vel og hún þrífst betur í því skjóli. Sjálf hefi ég ákveðið að tala næstum eins mikið um þetta mál á næstunni og kvótakerfið, og hef í hyggju að ræða þetta mál við mína þingmenn í mínum flokki til mögulegra tillagna á þinginu í haust og vona sannarlega að aðrir sem starfa í öðrum flokkum geri slíkt hið sama.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að dæma menn til meðferðar finnst mér skelfileg hugmynd.

Þeir myndu taka pláss, tíma meðferðaraðila og með viðmóti sínu draga úr þeim sem eru þar af eigin frumkvæði.

Annars á það ekki að vera glæpur að setja það í líkama sinn sem maður vill. Hvort sem það er matur, eitur eða vímugjafi. 

Fyrir þann aldurshóp sem er hvað oftast talað um að verði að vernda gerir sú staðreynd að þau eru ólögleg eiturlyfin ennþá aðlaðandi.

Fyrir utan tvískinnunginn við það að ríkið skuli selja bannvænustu eiturlyfin tvö og hafa á því einkaleyfi. Og skiptir þá ekki hvort miðað er við fjölda sem sem deyr eða örkumlast af völdum áfengis og tóbaks á hverju ári eða hlutfall notenda sem láta lífið. Svo ótrúlegt sem það virðist þá er áfengi og tóbak líklegra til að drepa þá sem það nota heldur en heróín og kókaín samkvæmt tölum frá bandarískum yfirvöldum (sjá slóð http://www.orange-papers.org/orange-ratpark.html ).

Þór Fjalar Hallgrímsson (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband