Það vantar atvinnu á Vestfjörðum herramenn.

Það er ótrúlegt að menn skuli enn þann dag í dag tala fyrir áframhaldandi kvótakerfi sjávarútvegs og það nýjasta nú varpa ráðherrar bara frá sér uppsögnum starfa og segja ekki í sínum höndum heldur fyrirtækjanna, þótt slíkt hafi verið viðvarandi frásagnir fjömiðla árið um kring. Guðjón Arnar benti réttilega á það að undirstaða alls annar væri aðkoma manna að sjávarútvegi. Ekki vantar patent lausnir á siflurfati fremur en fyrri daginn , nú mjög skringilegar í formi gsm dreifingarkerfis sem er sérstakt að skuli þurfa sérfjárveitingu fyrir vestan en ekki annars staðar. Það væri gaman að kikja í fjárlögin og athuga hvort hafnarmannvirkjum hefur ekki verið haldið við. Stjórnvöld hanga í handónýtu kerfi sem hreinlega gengur gegn tilgangi sínum þess efnis að byggja upp fiskistofna og viðhalda byggð í landinu.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ef þú gætir nálgast síðustu úttekt á atvinnumálum fyrir vestan og sent mér þá skal ég kíkja á það og benda þér á úrlausnir.  Við erum lítið land og til að lifa þá þarf ekki mikið. Það er ein atvinnugrein sem ég veit um í augnablikinu sem gæti gengið fyrir vestan en ég mundi gjarnan vilja sjá einhver gögn. 

kv

Sigurður Sigurðsson verkfræðingur

sigurdur@simnet.is 

Sigurður Sigurðsson, 29.4.2007 kl. 21:07

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Skal verða við þeirri beiðni svo fljótt sem verða má.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 29.4.2007 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband