Um daginn og veginn.

Mér hefur oft verið hugsað til þess undanfarið, hve löt ég er að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni hér á mínu bloggi nú orðið, miðað við hér áður og fundist ég óttalega léleg að blogga ekki neitt.

Það er samt einu sinni svo að þegar heilsutetrið gefur sig eftir slysfarir eins og gerðist hjá mér, þá skiptir maður um gír og hugsar um það eitt að byggja sig upp svo mest sem verða má og gerir ekki annað á meðan.

 Það er fullt af góðu fólki í pólítikinni nú um stundir og þjóðfélagsumræðan þrífst og dafnar eins og ætíð.

Ég er ánægð með sumarið hér sunnanlands, sem hefur verið þurrt og sólríkt eftir að loks tók að vora sem var með seinna móti en venjulega. 

Gott útiveruveður dag eftir dag hér á Selfossi er eitthvað sem ég er þakklát fyrir.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nú kannski ekki merkilegt en ég er einn þeirra sem las bloggið þitt alltaf og ég fer alltaf inn á það svona til að "tékka" á hvort þú hafir nú ekki sett eitthvað þar inn núna.  Í dag rættist það. smile

Jóhann Elíasson, 20.7.2015 kl. 09:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Jóhann.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.7.2015 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband