Hvernig gat mönnum dottið í hug að frysta skattleysismörkin ?

Frysting skattleysismarka og aftenging við verðlagsþróun var aðgerð sem gerði það að verkum að lágtekjufólk sat fast í viðjum fátæktar og 3% launahækkanir breyttu engu meðan skatttaka hófst af tekjum innan við 70.000. krónur lengst af. með tæplega 40 % tekjuskatti. Stjórnvöldum datt ekki einu sinni í hug að hækka persónuafsláttinn eða gera nokkuð það að verkum sem leysti gæti fólk úr þeim fátæktarfjötrum og hreinni vinnuþrælkun sem hið arfavitlausa skattkerfi hafði áskapað. Andvaraleysi verkalýðshreyfingarinnar gagnvart þeirri tekjuskerðingu sem lágtekjufólk mátti upplifa frá frystingu skattleysismarkanna hefur því miður verið algert. Hækkun skattleysismarka er því algjört forgangsmál fyrir almenning í landinu sem hefur fengið nóg af þvi að hlusta á stjórnarflokkanna reyna að telja fólki trú um  " góðærisveisluna "  sem enginn kannast við.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Einhvern veginn urðu þeir að flytja skattbyrðina til. Af þessum með 800.000+ og á þessa með 250.000-. Það er ljóst!

Auðun Gíslason, 24.4.2007 kl. 01:11

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Auðunn.

Já hér er mikil hneisa og skömm á ferð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.4.2007 kl. 01:19

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Tek undir það Hanna Birna, svo sannarlega ætlum við að taka til við að breyta um áherslur í íslensku samfélagi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.4.2007 kl. 01:28

4 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Einhversstaðar sá ég um daginn að Sjálfstæðismenn voru, líklega réttilega að eigna Ólafi Ragnari, uppáhaldsforsetanum sínum, að hafa aftengt vísitölu persónuafsláttarins í sinni fjármálaráðherratíð.

Ráðherrum Sjálfstæðisflokksins hefur víst aldrei hugkvæmst að þeir gætu kannske breytt þessu aftur í réttlætisátt á þessum 16 árum sem þeir haft til að breyta!. Þessir miklu athafnamenn hafa víst ekki framtak eða nógu sjálfstæðan vilja til að láta sér hugkvæmast það:)

Kristján H Theódórsson, 24.4.2007 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband