Skattbyrði tekjulægstu hópanna er skandall núverandi ríkisstjórnar.

Hvaða heil brú er í því að hátt í 40% skattgreiðslur af 69.000. krónum í tekjur, mínus persónusafsláttur sé á ferð gagnvart fólki í landinu hátt í tvö kjörtímabil ? Frysting skattleysismarka er skandall sem engar eðlilegar röksemdir er hægt að finna fyrir. Engar. Því til viðbótar hefur skattlagning einnig náð til styrkjakerfis félagsþjónustu í landinu þar sem styrkir eru skattlagðir sem tekjur með sömu ofurskattprósentu sem er stórfurðulegt vægast sagt. Hvers konar útreikningar kaupmáttar launa sem ekki taka mið af frystingu skattleysismarkanna,  geta því ekki verið réttir því skattleysismörk voru fryst um langan tíma þ.e. héldust ekki í hendur við verðlagsþróun í landinu sem þýddi að fólk hefur verið  ofurskattlagt á lægstu laununum.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Veit ekki með Færeyjar, en ríkisstjórnin verður að fara frá.

Georg Eiður Arnarson, 22.4.2007 kl. 23:41

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já ég er nú aldeilis hrædd um það að þessir herramenn þurfi frí og þótt fyrr hefði verið.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.4.2007 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband