Ríkisstjórnarflokkunum væri nær að biðjast afsökunnar.

Allra handa útskýringar fljúga nú um víðan völl svo sem hér má sjá frá Árna Þór þingmanni VG þess efnis að " tilviljun " hafi orðið gæfa Íslands..... í málinu.

Sú er þetta ritar gekk ekki á Bessastaði kaldan dag í janúar til að skora á forseta landsins, fyrir " tilviljun " ....

Til þess var rík ástæða, réttlætisvitund minni hafði verið misboðið af hálfu sitjandi ráðamanna sem hugðust gera þjóðina ábyrga fyrir því sem ekki var hennar í raun.

Ríkisstjórnarflokkunum væri hollara að biðjast afsökunnnar á eigin afglöpum í þessu efni.

kv.Guðrún María.


mbl.is Tilviljun hvernig Icesave-málið þróaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þetta Ríkisstjórnarlið og þeirra stuðnigs menn á þingi hefur enga samvisku og þar af leiðandi kann ekki að skammast sín.

Svo þykist þetta hyski (sorry Jón Gnarr) hafa verið aðal driffjöðurinn í þessum stór sigri Íslands fyrir EFTA dómstólnum síðasliðinn mánudag.

En ég held að allir landsmenn viti betur og hendi þessu hyski (sorry Jón Gnarr) út af þingi í kosningunum í vor?

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 31.1.2013 kl. 01:49

2 identicon

Sæl Guðrún

Kærkominn listi fyrir næstu kosningar. Ekki bara rikisstjórnarflokkar sem samþykktu icesave 3 líka stjórnarandstaðan fyrir utan Hreyfinguna

Kveðja Gestur

Já sögðu: Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar, Magnús Orri Schram, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ögmundur Jónasson, Mörður Árnason, Árni Páll Árnason, Árni Þór Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Björgvin G. Sigurðsson, Jón Bjarnason, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Oddný G. Harðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þuríður Backman, Þráinn Bertelsson, Valgerður Bjarnadóttir, Skúli Helgason, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Jón Bjarnason, Tryggvi Þór Herbertsson, Þráinn Bertelsson, Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Jón Gunnarsson, Katrín Jakobsdóttir, Kristján Þór Júlíusson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Róbert Marshall, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Einar K. Guðfinnsson, Ólafur Þ. Gunnarsson og Guðbjartur Hannesson.

Nei sögðu: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þór Saari, Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Eygló Harðardóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Vigdís Hauksdóttir, Lilja Mósesdóttir, Pétur H. Blöndal, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Birgir Ármannsson, Sigurður Kári Kristjánsson og Höskuldur Þórhallsson.

Hjá sátu: Siv Friðleifsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Guðmundur Steingrímsson.

Gestur Pálsson (IP-tala skráð) 31.1.2013 kl. 02:01

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir, takk fyrir innlitið.

Já Gestur það er ágætt að halda þessum lista til haga.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.1.2013 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband