Markaðshyggjuþokumóðan ?

Það er einhver dulúð sem fylgir þokunni og sannarlega sérstakt að sjá Esjuna pakkaða inn í þokumóðu.

Hér á árum áður eyddi ég miklu magni af orðum að ræða markaðshyggjuþokumóðuna sem mér fannst ganga ljósum logum, allt þar til hrundi hér í efnahagslífi einnar þjóðar, en hefur eitthvað breyst frá þeim tíma ?

Held ég hafi lesið rétt að skilanefnd Kaupþings hafi verið að höfða mál gegn lífeyrissjóðunum, sem áður hafði verið lesið um að ættu að fjárfesta í flestu á komandi árum hér á landi í formi Framtakssjóðs en samkvæmt fréttum einnig hafa þó tapað nokkur hundruð milljörðum.

Eitthvað finnst manni þetta skringileg rúlletta, og spurning um hvort menn gangi kanski enn um í markaðhyggjuþokumóðunni, þrátt fyrir yfirlýsingar um allt annað.

kv.Guðrún María.


mbl.is Esjan hulin þokufjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Guðrún María, ég held að það hafi ekkert breyst í okkar samfélagi hvað þetta varðar, eða kannski er réttara að segja að það hafi lítið breyst. Nema núna vitum við að spillingin er ótrúlega mikil og virðist engin áhugi fyrir að taka á henni svo eithvað vit sé í.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 24.7.2012 kl. 10:58

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir innlitið Sigmar.

Held þú hafir lög að mæla í því efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.7.2012 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband