Er ríkisstjórn Íslands tilbúin til þess að leggja Alþingi af ?

Vangaveltur þær sem fjármálaráðherra Þýskalands reifar hér eru til þess fallnar að reka endahnút á tilvist Evrópusamrunans að mínu viti, enda ganga þær út á það að sambandsþjóðir framselji fullveldi sitt og pólitiska ákvarðanatöku um eigin mál til ríkisstjórnar Evrópusambandsins og forseta þess.

Þá þyrfti ekki lengur þjóðþing í löndum sambandsríkjanna þau yrðu óþörf.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vill að ESB fái ríkisstjórn og forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Bara ráðsmenn!!'

Helga Kristjánsdóttir, 24.6.2012 kl. 02:51

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þeim yrði svo sem sama, því þeirra munu bíða feitar stöður eða framfærsla í Brussel eða Luxemburgh.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2012 kl. 09:17

3 identicon

Það er allavega ljóst að það er enginn skortur á hugmyndum hjá tugþúsundum þingmanna, ráðherra og öðrum sem starfa innan sem utan þessa kerfis. Því vekur það furðu að í hvert sinn sem einhver þeirra orðar svo fráleitar hugmyndir að þær rata í furðufréttir heimsfjölmiðlana þá eru sumir sem taka þá alvarlega og telja þá vera að tala fyrir allt sambandið.

sigkja (IP-tala skráð) 24.6.2012 kl. 10:53

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú ert með ólíkindum einföld sál í afneitun Sigkja.  Afneitun er eitt það versta sem menn komast í, því þannig festist maður í netinun eins og fluga hjá kónguló.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2012 kl. 11:44

5 identicon

Ekki veit ég hvað sál kallast sem trúir öllu því ruglaðasta sem ratar í fjölmiðla bara ef það passar við fyrirfram mótaðar og illa ígrundaðar skoðanir. Sér samsæri í hverju horni og er tilbúin til að trúa öllu því versta um samferðafólk sitt og ráðamenn þjóðarinnar. Færir aldrei nokkur rök fyrir máli sínu en kýs frekar að ráðast með persónulegum aðdróttunum að fólki sem bendir á rökleysur og þvælur í málflutningi þessarar litlu sálar. Ég læt aðra um það að finna nöfn yfir þannig sálir, enda ósköp einföld sál sem er ekkert að velta sér uppúr þvílíku eða sögusögnum og samsæriskenningum.

sigkja (IP-tala skráð) 24.6.2012 kl. 12:39

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er í það minnsta betra að velta sér upp úr því sem maður heyrir og fær það svo staðfest æ ofan í æ, heldur en að vera bæði með leppa fyrir augum, eyrnatappa og tunguhaft.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2012 kl. 13:18

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þjóðernis sósíalismi

Guðmundur Ásgeirsson, 24.6.2012 kl. 13:19

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir innlitið öll sömul.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.6.2012 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband