Kemst ekki með tærnar þar sem Ólafur Ragnar hefur hælana, frekar en aðrir.

Mig skiptir engu hversu margir munu bjóða sig fram gegn Ólafi Ragnari Grímssyni, því ég styð hann til setu árfam inn í annað kjörtímabil.

Því fleiri frambjóðendur því meira munu nokkur prósent dreifast á hina ýmsu frambjóðendur sem aldrei munu komast með tærnar þar sem Ólafur Ragnar hefur hælana.

kv.Guðrún María.


mbl.is Þóra ætlar í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála GMaría.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2012 kl. 01:20

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Cesil.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.4.2012 kl. 01:40

3 identicon

Frábær fréttakona.

Of ung í Forseta.....

mín skoðun.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 07:50

4 Smámynd: ThoR-E

Þú veist að Ólafur misnotaði forsetaembættið í þágu einstaklinga sem rændu bankana að innan og eiga stóran þátt í hruninu og því ástandi sem hér hefur skapast.

Eftir að Ólafur Ragnar hafði fengið slæma útreið í rannsóknarskýrslu alþingis var sett fram krafa um að forseti setti sér siðareglur. Hann hunsaði það.

Ólafur sendi mörg bréf í nafni embættisins til að styðja við og opna dyr fyrir útrásarmennina sem annars hefðu verið lokaðar. Fjárfestingar og viðskipti sem mörg hafa lent á þjóðinni að greiða. Og þeir fengu fálkaorðuna frá sama forseta fyrir sitt innlegg til viðskipta hér á landi. --- Að hugsa sér?!

Hvað stóð í þeim bréfum sem fela þurfti fyrir þjóðinni í tugi ára. 60 eða 80 ár. Afhverju mega þessi bréf ekki koma fyrir augu þjóðarinnar? Hvað stendur í þeim?

Ólafur hefur ekkert að gera sem forseti Ísland í 20 ár eftir þær gloríur sem hann gerði hér í kringum útrásina. Maðurinn væri ærulaus allstaðar annarstaðar og hefði þurft að segja af sér embætti vegna tengsla við viðskipti og menn sem nú eru til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. En ekki á Íslandi. Hér er hann sverð landsins sómi og skjöldur.. eða hvernig sem þetta er sagt.

Eru íslendingar gengnir af göflunum?

ThoR-E, 4.4.2012 kl. 12:38

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég mun kjósa Þóru :-)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 4.4.2012 kl. 23:55

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

AceR, sem er með læst blogg "" þar sem ekki sést ábyrgðarmaður, Svar mitt til þín er það að núverandi forseti hefur bjargað þjóðinni frá mestu óráðsíu sem ein ríkisstjórn hugðist koma á koppinn til lengri og skemmri tíma, sá hinn sami hefur sýnt það og sannað að hann fer ekki í flokksgreinarálit og er því forseti allrar þjóðarinnar.

Það er vel.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.4.2012 kl. 02:23

7 Smámynd: ThoR-E

Ég er búinn að opna bloggið ef þú getur ekki tjáð þig við fólk nema að vita fullt nafn þess. Ég lokað'i blogginu fyrir löngu, var búinn að gleyma því.

Að Ólafi. Ólafur hugsar um sig. Búið ;)

Það var þjóðin sem safnaði undirskriftum til að hann myndi hafna Icesave. - Þannig að þú mátt þakka þjóðinni fyrir þetta. Ekki einum versta forseta sem þetta land hefur þurft að geyma.

Þú kemur ekkert inn á bréfin eða siðareglurnar?

ThoR-E, 5.4.2012 kl. 09:48

8 Smámynd: ThoR-E

Ekki gleyma því heldur að Icesave er enn yfir okkur. Þú veist að það er búið að höfða mál gegn Íslandi sem gæti endað með hörmulegum afleiðingum fyrir þjóðina?

Eftir hrunið var Ólafur á sama stað og útrásarmennirnir eru núna.. í almenningsáliti.. hann sá sér leik á borði með þetta Icesave mál.. og er nú frelsari okkar endurfæddur......að hans og Útvarpi sögu..mati.

Er ekki nær að fá nýjan forseta. Sem er ekki með þessi tengsl við útrásina og hrunið á bakinu?

ThoR-E, 5.4.2012 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband