Áróðursmaskínan gegn kristinni trú hér á landi hefur margar birtingamyndir.

Kvartanir kærur og illindi allra handa hefur nú nokkuð lengi verið sérgrein landans en þegar svo er komið að farið er að rífa menn niður við störf sín í háskólasamfélaginu, að virðist, þá er ákveðnum punkti væntanlega náð ef svo má segja.

Ég er örugglega ekki ein um það að hafa fengið yfir mig ýmis konar athugasemdir ef ég hef ritað pistla um mína kristnu trú gegnum árin ellegar mælt minni kirkju bót, hvert svo sem tilefnið hefur verið hverju sinni.

Hluti trúleysingja hefur alla jafnan mætt með athugasemdir og ádeilu á hið kristna samfélag og Þjóðkirkjuna, þar sem virðing fyrir minni trú hefur ekki birtst mér í þeim hinum sömu athugasemdum, því fer svo fjarri, því miður.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vantrú svarar fyrir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Vantrú lagði fram kvörtun eftir réttum leiðum, ef ekkert hefði verið hæft í henni, hefði Siðanefnd einfaldlega vísað henni frá eða dæmt Bjarna í hag. Vantrú bauð margoft sættir, en því var hafnað. Bjarni nýtti sér þjófstolin gögn, og ekki nóg með það, heldur skrumskældi hann þau og falsaði til að láta þau líta verr út - hann hefur mig t.d. fyrir orðum annars manns, sem virðist dæmigert fyrir vinnubrögð hans.

Það er engin áróðursmaskína gegn kristinni trú hérna - en miðað við aðferðirnar hjá Bjarna mætti vel álíta hann hjól í einhverskonar áróðursmaskínu fyrir kristna trú; Guðfræðideild HÍ.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 7.12.2011 kl. 03:27

2 identicon

Hræsni á sig enginn takmörk. Hver var það sem sagði að mannréttindaráð væri eins og Sovietríkinn og sagði að trúleysingar væri ógn við mannlegu samfélagi?

Virðinga á að fara í báðar áttir ekki í eina.

Arnar Magnússon (IP-tala skráð) 7.12.2011 kl. 12:11

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Tinna og Arnar.

Berið þið virðingu fyrir minni kristnu trú ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.12.2011 kl. 00:28

4 identicon

Hvað merkir það að bera virðingu fyrir skoðun? Nú ert þú andstæðingur ESB aðildar en ég hef þá skoðun að Ísland eigi að ganga í ESB - berðu virðingu fyrir þeirri skoðun? Í hverju væri slík virðing fólgin?

Fólk virðist gjarnan rugla saman 'virðingu' fyrir skoðunum og gagnrýni. T.a.m finnst mér skoðun þín á ESB aðild röng og get fært fyrir því ýmis rök. Með því er ég samt ekki að segja að þú megir ekki hafa þína skoðun eða að þú sér slæm manneskja að hafa þessa skoðun.  Ég er heldur ekki að banna þér að rökstyðja þína skoðun.

Það er ekkert að því að deila (jafnvel harkalega) um skoðanir hverjar sem þær kunna að vera. Þetta virðingartal gagnvart skoðunum er hins vegar illa ígrundað og að mínu mati einungis sett fram til að koma í veg fyrir gagnrýni.

Guðmundur Guðmundsson (IP-tala skráð) 8.12.2011 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband