Burt með illsku og hatur.

Það er rétt hjá biskupi að reiðin ber okkur ekki langt, né heldur fordæmingarárátta allra handa þar sem leitast er við að finna sökudólga í hverju horni, til þess að skella skuldinni á.

Það heyrist til dæmis oftar en ekki að " allir stjórnmálamenn séu ónýtir og óhæfir " sem er alhæfing sem á sér illa stað, raunin er sú að þeir eru misjafnlega duglegir í sínu starfi, eins og við hin sem ekki sitjum á Alþingi, við höfum hins vegar möguleika á því að velja fólk til starfa í kosningum.

Hrun eins samfélags af efnahagslegum toga, gaf okkur ekki leyfi til þess að henda á brott mannasiðum í voru samfélagi, allsendis ekki og hvarvetna ættu menn að geta gætt orða sinna í garð náungans eins nú og fyrir hrun.

Sannleikurinn mun sigra lygina og kærleikurinn víkja á brott hatri og heift.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mannorðsmorð daglegt brauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Biskupinn virðist enn ekki gera sér grein fyrir í hvers konar ofur-aulaþjóðfélagi við þjóðin höfum þurft að búa við á umliðnum misserum og
árum. Og það innan sjálfrar kirkjunar! Þessi biskup virðist lifa í algjörum
fílabeinsturni, og á því að hafa vit á að víkja!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2011 kl. 00:38

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Á hann að víkja fyrir mistök forvera síns ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.10.2011 kl. 00:47

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei auðvitað ekki Guðrún María, en hann hefur haldið all klaufalega á málum þessu tengt, og er í raun að skaða þjóðkirkjuna fyrir vikið.  Ekki að ég hafi svo sem mikið á móti því, en þannig er bara staðan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.10.2011 kl. 00:50

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Mín skoðun er sú að sr.Karl hafi ekki haldið neitt klaufalega á málum frekar en annar embættismaður í þessari stöðu, og það atriði að axla ábyrgð án þess að víkja sér frá því hinu sama er eitthvað sem ég tel að sá hinn sami muni öðlast virðingu fyrir er fram líða stundir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.10.2011 kl. 00:54

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já. Biskup sem talar svona veruleikafirrtur til þjóðarinnar á að víkja!
Aulahátturinn hefur ekki síður fengið að grassera í þjóðkirkjunni eins og í
þjóðfélaginu. SBR er biskupinn hreyfir ekki legg né lið þegar trúleysingjar
í skjóli vinstrisinnaðra róttæklinga og anarkista komast upp með bann á
kristniboði í skólum í Reykjavík.  Þvert á okkar stjórnarskrá!  SKANDALL!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2011 kl. 01:01

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hef aldrei þekkt sr.Karl af veruleikafirringu, þvert á móti hefur sá hinn sami gengið fram af heilindum og raunsæi, þar sem ég þekki til, en sjálfsagt er að geta þess að hann var minn sóknarprestur í Hallgrímskirkju á sínum tíma og kom að erfiðum áföllum í mínu lífi, við sorg og missi sem sáluhjálpari.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.10.2011 kl. 01:08

7 identicon

Heil og sæl Guðrún María - og aðrir gestir, þínir !

Guðrún María og Ásthildur Cesil !

Tek undir; með fornvini okkar, Guðmundi Jónasi. Gerfi- Byskups hróið; er viðundur af 1° - og ætti að afsegjast, með öllu, sem og hirð hans öll.

Landskassinn (Ríkissjóður); er sagður spreða 5 - 6000 Miljóna króna, í þetta Hempklædda óeðlis batterí (Þjóðkirkjuna) - fjármunum; sem betur væri komið, í höndum þeirra, sem lakast standa.

Ég hvet ykkur báðar; til þess að ígrunda mín orð - sem og vinar okkar Guðmundar, jafnframt.

Og; reynið ekki, að koma með eitthvert innihaldslaust stagl, til varnar Hempu klæddu ófétunum - og hræsnurunum, fornvinkonur góðar.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi, sem jafnan / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 01:23

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég var ekki að verja biskupinn Óskar.  Ég var að reyna að vera kurteis Ég er ekki í þjóðkirkjunni fór þaðan fyrir löngu síðan, þegar mér varð ljóst hvernig hrokinn og yfirdrepskapurinn var þar.  Ég er Ásatrúar.  Hins vegar virði ég trú annara.  En það er önnur saga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.10.2011 kl. 09:51

9 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Ásthildur Cesil !

Þakka þér fyrir; einarðleg svör þín. Mér blöskrar einfaldlega; að þessi óekta Byskup, skuli geta vaðið uppi, með falsanir og hræsni, ásamt þorra undirsáta sinna, og það; á ofurkjörum þeim, sem kunn eru, öllum.

Gætum líka að því; að Kirkja og Ríki, sitja á fjölda jarðeigna, sem svikin voru úr höndum forfeðra okkar, sem formæðra - og við höfum mátt þola, bótalaust, alla tíð.

Þannig að; vinkona okkar, Guðrún María, getur alveg sparað sér, að verja Hempu klæddu ódámana, í öllu tilliti, með vísan til þessa, alls.

Með; þeim sömu kveðjum - sem fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 12:26

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.10.2011 kl. 13:09

11 identicon

Við hverju er FULLORÐIÐ fólk að búast; HALLÓ, þessir menn eru fullorðnir í galdraleik; Auðvitað gera þeir klikkaða hluti, auðvitað taka þeir klikkaðar ákvarðanir;

Hefur eitthvert ykkar lesið bibliu, séð þá klikkun og ultra-geggjun sem er þar í gangi, það liggur í augum uppi að menn sem hanga á þessu rugli sem biblían er, að slíkir menn munu gera geggjaða hluti, taka geggjaðar ákvarðanir; Eru úti að aka.. HELLO, earth to monkey-sheep, wake up :)

DoctorE (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 15:53

12 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Guðrún María !

Erfitt mun þér reynast; að kveða fornvin minn, DoctorE, í þann kút, sem þú helzt kysir.

Hann hefir; um margra ára bil, kveðið margan í kútinn - hér á vef, en jafnframt höfum við mörg, haft hina mestu skemmtan, af frásögum pilts, í mörgu tilliti, fornvinkona góð.

Sömu kveðjur - sem; hinar seinustu /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 21:11

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl verið þið aftur og þökk fyrir innleggin.

Doctor E.

Í Orðskviðunum 26.5 segir : " Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo hann haldi ekki að hann sé vitur.

þakka aftur innleggin.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.10.2011 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband