Leiðir hin mikla skjálftavirkni til eldsumbrota ?

Náttúran er óútreiknanleg en nútíma aðferðir við eftirlit og mælingar hvers konar gefa vísbendingar um hvað er í gangi.

Það skelfur all nokkuð hér á Reykjanesskaganum í hrinum öðru hvoru eins og í Mýrdalsjökli en mér kom það í hug í kvöld hversu vel menn væru undirbúnir ef svo ólíklega vildi til að eldsumbrot yrðu á tveimur stöðum samtimis á landinu.

Án efa eru menn undirbúnir í slíku, en hins vegar mætti upplýsa meira um almannavarnaráætlanir af hálfu sveitarfélaga í þéttbýlinu.

Vonandi er að við fáum hlé frá hamförum eins og þeim sem nú þegar eru komnar til sögu undanfarið en við lifum í eldfjallalandi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Engin augljós skýring á óróa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála því að undirbúningur og viðbröggð við hamförum á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu er í rúst ekki neinar viðbragðsáætlanir við stórnum hamförum það er eins og ráðamenn séu rekald í einveru tómarúmi þegar kemur að alvöruni!

Sigurður Haraldsson, 7.9.2011 kl. 02:04

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Já það er annað hvort í ökkla eða eyra, hér eitt sinn voru almannavarnaflautur þandar miðvikudaga með reglulegu millibili til prófunar, en ég man ekki eftir kynningarfundum um almannavarnaráætlanir á Stór Reykjavíkursvæðinu hin síðustu ár.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.9.2011 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband