Óheppileg ummæli utanríkisráðherra í Vilníus.

Það er afar óheppilegt að utanríkisráðherra skuli láta hafa eftir sér eitthvað um mál sem ekki er enn afgreitt á Alþingi, hvað þá varðandi afstöðu forseta um málið varðandi vísun í þjóðaratkvæði.

Svo virðist sem ráðherrann geri sér ekki grein fyrir því hve mikil andstaða er við þetta mál hér á landi ekki hvað síst hjá yngri kynslóð þessa lands sem er ekki tilbúin til þess að taka á sig skuldbindingar af misviturlegum rekstri einkabanka í góðærinu.

Einkabanka sem átti að fara á hausinn ef ekki gæti staðið við sínar skuldbindingar, en ALDREI skyldi lenda á skattgreiðendum þessa lands að taka fallið af.

Það atriði að reyna að afgreiða þetta mál " pólítiskt " til þess að komast inn í Evrópusambandið jafngildir þvi að sá flokkur sem hefur það hið sama á stefnuskránni mun útskrifa síg sjálfkrafa úr íslenskri pólítik að mestu leyti til framtíðar.

kv.Guðrún María.


mbl.is Icesave samþykkt í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sæl Guðrún og er ég algjörlega sammála þér...

Fyrir utan þetta þá varðar það við lög að Ríkisstjórnin skuli láta sína eigin löngun ráða för framyfir hag og velferð Íslands...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.2.2011 kl. 01:24

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Ingibjörg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.2.2011 kl. 01:31

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Vonandi aðstoðum við fólk og upplýsum það um alla þætti þessa máls. Mér finnst ekki veita af,þegar fólk er illa upplýst,man ekki til að okkar staðreyndir um sakleysi af skuld þessa Icesave-kúgunar,komi nokkurntíma fram í ljósvakamiðlum,nema hjá Inn,en margir horfa t.d. bara á Ruv. M.b.kv.

Helga Kristjánsdóttir, 12.2.2011 kl. 02:02

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Íslanska þjóðin er ekki ábyrg fyrir þjófnaði í útlöndum enda þótt þjófarnir hafi verið íslenskir.

Þetta er í það minnsta mín skoðun.

Árni Gunnarsson, 12.2.2011 kl. 10:54

5 Smámynd: Óskar

Skil ekki hvað er svona óheppilegt við þetta.  Maðurinn er bara að greina frá augljósum staðreyndum.  Það sem heykvíslahjörðin skilur hinsvegar ekki er að ef farið yrði að ráðum hennar og þjóðin neitar að borga Icesave þá veldur það til lengdar hundrað sinnum  meira tjóni en Icesave er , ef ekki meira.  En þessi þroskahamlaða hjörð virðist hafa eitthvað allt annað en heila í höfðinu.  Þetta pakk vill kalla margfalt lengri og dýpri kreppu yfir okkur en nauðsynlegt er.  Hyski segi ég bara og meina innilega.

Óskar, 12.2.2011 kl. 11:57

6 identicon

  

Oft hafa komið heimskuleg ummæli frá þessum Össuri, svo að varla hrekkur neinn af hjörunum þótt hlaupastráknum verði halt á tungunni. Öðru máli gegnir um Óskar Haraldsson sem þekktur er fyrir skýrleika í máli og hugsun !!!

 

Óskar skilur ekki hvað er heimskulegt við ummæli Össurar, á fyrsta sólarhring »Samstöðu þjóðar gegn Icesave.« Hann skilur ekki að Íslendingar hafna innlimun í Evrópuríkið og hafna Icesave-klafanum sem innlimun fylgir.

 

Þjóðsvik eru alvarlegt mál Óskar og þau gleymast ekki auðveldlega. Icesave-stjórnin mun ekki lafa mikið lengur í valdastólunum og Landsdómur bíður þeirra, eins og dagur fylgir nótt. Hvers vegna fylgir þú úrhrökum að málum, svona ljúfur drengur ?

 

 

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 13:57

7 Smámynd: Benedikta E

Undirskriftasöfnun er hafin gegn Icesave  www.kjosum.is

Benedikta E, 12.2.2011 kl. 14:57

8 identicon

Þessi aumingi er eitt það daprasta eintak af mislukkuðum trúð sem íslensk stjórnmálastétt hefur borið af sér. Og eru þeir nokkrir.

Það versta er að jókið er alt á Íslensku þjóðina, ekki hann og samspillinguna.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 22:13

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Össur er indæll maður en hins vegar hefur hann fallið í þann pytt að vera afar tækfifærissinnaður stjórnmálamaður sem hoppar alla flóruna eftir vindi sem blæs.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2011 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband