Hagfræðingastóðið í hagdeildinni.

Það hefur gengið eftir sem Guðmundur heitinn Jaki spáði og varaði við , þ,e hagfræðingastóðinu innan verkalýðshreyfingarinnar.

Getur það verið að það væri vitinu meira að Alþýðusambandið eyddi iðgjöldum launþega í eitthvað annað en hagdeild innan eigin vébanda ?

Er ekki nóg að hafa greiningardeildir banka til þess að standa í slíku ?

Stundum veit ég ekki hvað verkalýðshreyfing þessa lands er orðin að, hvort þar er um að ræða stjórnmálaflokk, eða valdaapparat sem þykist sitja við valdatauma í landinu hverju sinni, ellegar fjármálastofnun ..... ?

Hvergi í lögum um vinnumarkað er þess getið leyfi ég mér að fulllyrða að verkalýðsfélög eigi að vesenast í því að spekúlera í verðmyndun á íbúðarhúsnæði svo eitt dæmi sé tekið.

Flottræfilshátturinn og vitleysan riður ekki við einteyming og með ólíkindum hvernig launamenn í landinu hafa látið mál þessi þróast.

kv.Guðrún María.


mbl.is Botni verðfalls væntanlega senn náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er margt til í þessum hugrenningum þínum Guðrún. Þó skiptir meira máli að til forustu fyrir þessi samtök sé fólk sem þorir að standa með sínum umbjóðendum.

Gvendur Jaki varð aldrei forseti ASÍ, því miður. Það tíðkast ekki að formenn verkalýðsfélaga veljist í þá stöðu. Gvendur var hins vegar óragur við að segja sínar skoðanir og stóð sem klettur á rétti sinna félagsmanna. Aldrei lét Gvendur pólitík þvælast fyrir sér þó hann hafi verið flokksbundinn einum ákveðnum stjórnmálaflokk. Það verður ekki sagt það sama um Gylfa Arnbjörnsson.

Í dag virðist sem aðeins einn formaður stéttafélags hafa þann kjark að þora að segja hlutina eins og þeir eru, hann er ekki tengdur neinum stjórnmálaflokki og hefur lyft grettistaki í kjarabótum og kjararétti fyrir sitt félagsfólk. Því miður mun hann ekki verða forseti ASÍ frekar en Gvendur jaki. Ástæðan er sú sama.

Það er einnig spurning til hvers við þurfum svona margar greiningardeildir í svo litlu hagkerfi. Seðlabankinkinn er með eina, allir viðskiptabankarnir eru með sínar, samtök atvinnurekenda og samtök launafólks hafa sínar og sjálfsagt eru fleiri greiningardeildir til. Oftast eru niðurstöður þeirra svipaðar, en gleimum ekki því að flestar eða allar þessar greiningardeildir héldu því fram, allt fram á síðasta dag fyrir hrun, að allt væri í lagi!! Enn er í flestum tilfellum sama fólk sem er að greina framtíðina og þá.

Gunnar Heiðarsson, 22.10.2010 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband