Verkefni umhverfisráðherra að smíða reglugerð, eða hvað ?

Svo virðist vera að það sé á gráu svæði hver ber ábyrgð á því sjá til þess að ekki hljótist umhverfismengun af slíkum reka á fjörur landsins.

Ef til vill hefur viðkomandi Heilbrigðiseftirlit landssvæða eitthvað með málið að gera, skal ekki um segja en hvers konar mengun af völdum þessa getur verið mikil.

Vonandi sjá menn til þess að kveða skýrt á um ábyrgð í þessu efni, og ef setja þarf slíkt inn í reglugerð þá ætti það að vera framkvæmanlegt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Margir skoða skepnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Helgason

Er ekki einfaldast og ódýrast að láta þessa skepnu eiga sig þar sem hún er ???

Tryggvi Helgason, 26.8.2010 kl. 00:22

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er kannski einfaldast að leyfa hræinu að rotna á staðnum.

Einfaldast ef finna þarf leið til að losna við mannabyggð í nágrenninu.

Svona talar enginn sem búið hefur í námunda við rotnandi hvalhræ.

Það  á að draga hræið út á haf tafarlaust og sprengja það.

Árni Gunnarsson, 26.8.2010 kl. 06:39

3 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Umhverfisráðherra er að smíða reglugerð þar sem mengadi hvalreki verður bannaður...

Eiður Ragnarsson, 26.8.2010 kl. 07:19

4 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Já,  Allir hvalir þurfa að hafa farið í gegnum umhverfismat áður en þeim verður leyft að reka á land.

Jóhannes H. Laxdal, 26.8.2010 kl. 09:47

5 Smámynd: Maelstrom

Babú babú, vælubíllinn er á leiðinni. 

Það er ótrúlegt hvað mannskepnan er orðin háð ríkisafskiptum.

Ef það er ómögulegt að láta þetta rotna á staðnum þá þarf að flytja hræið.  Það er ekki þar með sagt að það þurfi að flytja það í einu lagi.

Leigja vélsög í Bykó, kaupa sér 66°N pollagalla og svo bara búta þennan andskota niður.  Menn geta líka fengið lánaðan hvalskurðarhníf ef splatter er ekki málið.

Sýna smá frumkvæði.  Ekki væla svona mikið. Ríkið þarf ekki að koma að öllu. 

Maelstrom, 26.8.2010 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband