Ţjóđhátíđ Vestmannaeyja er einstök.

Fađir minn heitinn var löngum međ hugann út í Eyjum, og sem aldrei fyrr er ţjóđhátíđ var, og hann sá um ađ uppfrćđa um ţessa miklu skemmtun áđur en ég sjálf var komin á ţann aldur ađ fara og upplifa ţennan atburđ.

Brekkusöngurinn, brennan og flugeldasýningin er eitthvađ sem reynt hefur veriđ ađ flytja út frá Eyjum upp á land, en ţađ er bara ekki eins og vera í Eyjum, ţví ţađ er bara einn brekkusöngvari Árni Johnsen og hann er í Eyjum ţessa helgi.

Hann tók viđ af Ása heitnum i Bć, sem var einstakur lifskúnster eins og Árni, en stemmingin í brekkunni í Herjólfsdal viđ söng ţúsunda manna er eitthvađ sem varla verđur međ orđum lýst.

Lífsgleđi Vestmanneyinga og húmor fyrir mannlífinu almennt, birtist ekki hvađ síst í textum Ása heitins í Bć en pabbi sá um ţađ ađ kenna mér Sćsavalsinn löngu áđur en ég fór sjálf á ţjóđhátíđ.

Set hér međ ţađ sem ég man úr

Sćsavalsinum.

" Er kvöldskuggar lćđast um tinda og tjöld,
ţá tökum viđ upp einn hnall.
Ţví ţetta er skrykkjótt og undarleg öld,
međ eitt hundrađ prósent spjall.
Gott er í Gírkassahreppi, ađ gleđjast viđ mćnuval.
Svo syngjum viđ valsinn hans Sćsa í kvöld,
og svífum í Herjólfsdal.

Bróđir minn Sveinn og Baldur,
Bjarni sá andskoti.
Jakob og Jón Ástvaldur
og hann Jósef í Smittkoti."

eftir Ása í Bć."

kv.Guđrún María.


mbl.is Ekkert jafnast á viđ ţjóđhátíđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband