Hinn mikli skortur á gagnrýnni hugsun.

Sigmundur Davíð hittir naglann á höfuðið varðandi það atrið að skortur á gagnrýnni hugsun sé meginorsök þess sem íslenskt þjóðfélag á nú við að etja.

Þótt ég sé nú í dag flokksmaður í Framsóknarflokknum, þá var ég það ekki og tók þátt í starfi annarra flokka á stjórnmálasviðinu, þar sem ég gagnrýndi þann flokk ásamt öðrum flokkum eftir efnum og ástæðum hvarvetna.

Á sínum tíma var Framsóknarflokkurinn í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn og tók þar að sér erfiða málaflokka svo sem heilbrigðismál og félagsmál, ásamt fleiru, sem yfirleitt vill verða hlutskipti þeirra flokka sem fara saman í samsteypustjórnir þar sem sá stærri afhendir hinum minni erfiðari málaflokkana og hefur þar með möguleika á því að koma betur undan stjórnarsamstarfi, eins og varð raunin í samstarfi þessarra tveggja flokka.

Sjálfstæðisflokkurinn kom sér lipurlega frá þvi í áraraðir að taka að sér heilbrigðismálin, þ.e umfangsmesta málaflokkinn og stærsta póst vergra þjóðarútgjalda og slapp þar með alveg við gagnrýni á það hið sama ráðuneyti sem á þeim tíma mátti þurfa að taka ýmsar ákvarðanir um breytingar.

Framsóknarflokknum var kennt um niðurskurð og breytingar þar á bæ, er leið að lokum kjörtímabils.

Alvarlegasti skorturinn á gagnrýnni hugsun var hins vegar varðandi skipan mála í fiskveiðistjórnuninni þar sem varðstaða Sjálfstæðisflokksins um óbreytt kerfi var nær alger síðustu ár samstarfs millum þessara flokka.

kv.Guðrún María.


mbl.is Framsóknarflokkur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband