Allt getur gerst á þessu eldfjallasvæði á Suðurlandi.

Ný sprunga hlýtur að þýða hreyfingu á svæðinu og í mínum huga getur allt gerst þarna, og vonandi taka menn inn í nógu marga óvissuþætti varðandi það hið sama.

Hin nýja gossprunga segir nógu mikið um það að á öllu má eiga von, þegar eldur er uppi.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Ný jökulsprunga í Goðabungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sæl Guðrún María.

Haraldur Sigurðsson er nýbúinn að lýsa því yfir að gosið hafi náð hámarki og að ekkert aukalega sé á leiðinni.  Svo gerist þetta.  Þetta segir manni að ekki einu sinni spekingana er að marka þegar kemur að þessu gosi, ekki frekar en í Grímsvötnum 1996.  Höfum allan varann á og búum okkur undir Kötlugos.

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 1.4.2010 kl. 00:06

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Einmitt! Verum við öllu búin. Enginn getur sagt til um hvað getur gerst. M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.4.2010 kl. 00:23

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Það er alveg rétt að engu er að treysta í raun, þegar eldur er uppi á annað borð, ekki einu sinni blessuðum vísindamönnunum, varðandi þróun mála.

Já ég held að hyggilegra sé að hafa allan þann vara á sem mögulegur er.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.4.2010 kl. 00:26

4 identicon

Margir spekingar hafa talað en vísindamenn vita ekki neitt hvað er að gerast þarna en það er allt fljótandi í hrauni rétt undir yfirborðinu og það getur komið upp hvenær sem er, og mun hvað? Það var einkennilegt að sjá viðvaranir um frekari virkni og stórumbrot á svæðinu á netinu á sama tíma og okkar "háskóla menntuðu menn" sögðu að nú væri allt orðið rólegt og öllum væri fært að ferðast þar um, einkennileg er nú tilveran, kannski ættum við að fjölga þessum blessuðum háskólum eða hvað?

tesco (IP-tala skráð) 1.4.2010 kl. 01:54

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þetta segir okkur það að ekki er allt mælanlegt, né heldur fer fram eftir fyrirfram stöðluðum formúlum, sem hlýtur að bætast í safn vísindamanna nú um stundir að öllum líkindum.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.4.2010 kl. 02:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband