Vissi þjóðin af því að samningar um icesave væru í gangi fyrir kosningar í apríl ?

Sé að hér er verið að ræða um marsmánuð sem er jú fyrir þingkosningar sem fram fóru í apríl, en ekki man ég eftir því að hafa heyrt um þessar viðræður í kosningabaráttunni.

Fjármálaráðherra VG, trúir utanríkisráðherra SF, en sami maður trúir því ekki að fyrrum formaður Alþýðubandlagsins sáluga, formaður samninganefndarinnar hafi farið á bak við yfirmann sinn utanríkisráðherran varðandi skjöl í málinu.

Hverju á almenningur að trúa í ljósi þessara upplýsinga ?

Þvílík og önnur eins vitleysa er vandfundin.

kv.Guðrún María.


mbl.is Steingrímur segist trúa Össuri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Það eru ansi margir að leita eftir og búa til vitleysu þessa dagana. Þeir fá líka það sem þeir eru að leita að. Svo eru það við hin sem viljum fá þetta Icesave mál afgreitt þó fyrr hefði verið. Þetta mál var frágengið pólitískt um miðjan nóvember í fyrra þegar Árni, Geir og Davíð lýstu yfir og skrifuðu undir samningsdrög þar sem ábyrgð ríkisins á tryggingasjóði sparífjáreigenda var viðurkennt. Síðan hefur þetta bara verið einfalt innheimtumál þ.s. við höfum eytt alltof miklum tíma í að ræða greiðslutilhögun. mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 30.12.2009 kl. 02:25

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ekki gefast upp við erum íslendingar og verðum að vera stolt af því menn eru farnir að flýja land í stórum stíl ekki borgar það fólk skuldirnar.

Sigurður Haraldsson, 30.12.2009 kl. 02:34

3 identicon

Mikið rosalega ertu vitgrannur Gunnlaugur B

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 02:40

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Einfalt innheimtumál, Gunnlaugur ???? Afar fróðlegt viðhorf. Sé að þú nefnir aðeins Sjálfstæðismenn ekki Samfylkingu er það tiskan ?

Ingibjörg Sólrún var utanríkisráðherra í stjórn Geirs, og hún var einnig formaður Samfylkingarinnar, var það ekki ?

ER það meining ykkar Samfylkingarmanna að samþykkja hvaða dellu sem er yfir íslenska þjóð til þess að hanga áfram við valdataumana um tíma ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.12.2009 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband