Það yrði yndislegt að fá Davíð Oddsson sem ritstjóra Moggans.

Þótt ekki væri nema til þess að sjá vinstri öfgamenn dansa sinn sérstaka stríðsdans í pólítíkinni.

Davíð yrði ferskur andblær í annars andvaralaus samræðustjórnmál samtímans, það efa ég ekki og fyrsta sem mér datt í hug var að setja það að stefnuskrána að fara að kaupa Moggann aftur.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Guð minn einasti hvað svona færslur eru eitthvað sorglegar..

Hér er allt að fara til andsk að stórum hluta Davíð að þakka, og þú hlakkar yfir að fá Davíð aftur bara til að stríða vinnstra fólki, Virkilega háleitt markmið..

´Ég gæti sagt svo margt fleira um fólk sem talar og hugsar eins og þú, en fjandinn að ég nenni að eyða orku í það..

Afskaplega daaaapurt......

hilmar jónsson, 22.9.2009 kl. 00:54

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já einmitt þú álítur það einum manni að kenna, hvað með alla hina Hilmar ?

Hvað með aðra stjórnmálaleiðtoga og afrek þeirra annað en að rífa niður persónu Davíðs Oddssonar flokkum sínum og sér sjálfum til framrdráttar, spyr sá sem ekki veit ?

hygg að hollt sé að fara að skilja hismið frá kjarnanum í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.9.2009 kl. 01:22

3 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Þetta er þin daprasta færsla fram að þessu,þeir sem hugsa svona eiga bara skilið ástandið eins og það er í dag,ég verð alltaf jafn hissa þegar ég heyri fólk tala um að fá þá aftur sem komu okkur í þetta,en ég vona að þú hressist,kv frá Fjallamanni.

þorvaldur Hermannsson, 22.9.2009 kl. 01:25

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þorvaldur.

Ég er hress eins og við Fjallamenn ætíð.

Telur þú virkilega að hægt sé að tengja eitthvað við einn mann ?

Er svo undrandi yfir ykkur vinstri mönnum í þessu efni sem hengt hafið gagnrýni ykkar á annmarka stjórnarathafna alla á einn mann.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.9.2009 kl. 01:35

5 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Ég sagði hvergi að þetta væri einum manni að kenna,en Davíð var aðal leikarinn í þessu öllu.Ég las Bókina fár undir Fjöllum,þar sem segir frá samskiftum og bandalagi Páls Brím og þorvaldar á Þorvaldseyri gegn sveitúngum sýnum sem vildu ekki þóknast þeim.

Síðan hafa aðferðir Davíðs gegn andstæðingum sýnum alltaf minnt mig á Pál Brím,og þorvald,ekkert nema yfirgangur og frekja,vill öllu ráða.

Svo mætti Davíð niður á Austurvöll til að mótmæla því sem hann átti mestan þátt í að skapa.

Er fólk ekki í lagi sem vill fá þennan mann aftur.kv

þorvaldur Hermannsson, 22.9.2009 kl. 02:15

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þorvaldur,

ef þú telur Davíð hafa verið aðalleikarann, þá segir þú mikið.

Ég veit líka mikið um Fár undir Fjöllum og er afkomandi þeirra er hröktu það mál til baka fyrir Landsdómi á sínum tíma, en þær aðferðir voru, eru og verða sérstakar, en offar fiskveiðistjórnarkerfisins undir forsvari Þorsteins Pálssonar sem nú vill í Evrópubandalagið eins og Samfylkingin, minnir mig meira á það atriði.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.9.2009 kl. 02:30

7 identicon

Hvernig dettur þér í hug að það séu bara vinstri menn sem vilja ekki hafa þennann mann í áhrifastöðu.

Sjálfsblekkingin hjá sumu fólki ríður ekki á einteymingi.

Davíð stjórnaði af festu síðustu 12 ár , það hafa menn jú marg sagt, hann er að sjálfsögðu ábyrgur sem persóna fyrir mörgu .

Hann getur að mikklu leiti eignað sér hrunið eins og hann var nú duglegur að eigna sér´"góðærið".

Hanns tími er liðinn og sorglegt að sjá að sæmilega greint fólk sé haldin slíkri blindu.

Honum væri nær að byðja okkur afsökunar fyrir þá skaðræðis stefnu sem hann rak hér í tólf ár.

Það eru til mörg afbrygði af hægristefnu en þetta var sú versta.

Blind markaðshyggja, ekkert regluverk var krafan ekki kenna öðrum um.

Og ekki stimpla mig sem vinstrimann því það er ég ekki.

Með kveðju með von um að fólk vakni af þessari ofsatrúar foringjaoftæki sem er því miður algengt hjá sjálfstæðismönnum.

Þannig komst Hitler til valda, Mein Fuhrer hrópaði fólkið, hann var jú kraftaverkamaðurinn, en leiddi síðan alla með sér í glötun.

Sömu merki hér á lofti.

Arthur Þorsteinsson

Arthur Þorsteinsson (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 02:34

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvað skiftir það máli hver er ritsjóri þarna - óþarfi að fara á límingunum

Jón Snæbjörnsson, 22.9.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband