Orðið " kvóti " má fara í brottkast í umræðu um stjórnun fiskveiða.

Hvað er heimild til að veiða fisk annað en heimild, og  samkvæmt núgildandi lögum myndar slík heimild ekki eignarétt, né óafturkallanlegt forræði einstakra handhafa.

Slíkri heimild er úthlutað frá einu fiskveiðári til annars, en fiskveiðiár hefur miðast við september.

Framsalsvitleysan sem komið var af stað hér á landi er upphaf og endir þess hruns sem þjóðin stendur frammi fyrir í ævintýramennsku prentunar plastpeninga í hagkerfið, sem hófst með þáttöku sjávarútvegsfyrirtækja á hinum íslenska hlutabréfamarkaði.

Með dyggri þáttöku forkólfa verkalýðshreyfingarinnar sem skipa í stjórnir lífeyrissjóða, hófu sjóðirnir að fjárfesta í plastpeningabraskinu í upphafi en drógu sig síðan út, sem og sjávarútvegsfyrirtækin sjálf um leið og arðsemisforsendur urðu á reiki í þessu skrýtna skipulagi og tekist hafði að mergsjúga fjármagn út úr atvinnugreininni en eftir stóð skuldasöfnun og ævintýramennska í formi offjárfestinga sem enn sér ekki fyrir endann á.

Vanda útgerðanna hér á árum áður var vissulega sópað undir teppið með gengisfellingum á gengisfelingum ofan um tíma, en prentun plastpeninga og fjármálabrask með arð af sjávarútvegi á Íslandi sem til varð með framsalsvitleysunni toppar allar fyrri gengisfellingar.

kv.Guðrún María.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Leiga frá útgerð sem fær aflaheimildum úthlutað ókeypis er siðleysi sem ekki er hægt að verja með rökum. Þegar skortstöðu á aflaheimildum er svo haldið uppi af Sjávarútvegsráðuneytinu/Hafró/LÍÚ myndast verð sem enga stoð eiga í viskiptalegri rökhyggju. Afleiðingin verður svo einfaldlega sú að öllum fiski er hent nema þeim allra verðmætasta. 

Þetta er engri þjóð boðlegt að horfa upp á. Og þetta skekkir að sjálfsögðu alla mynd af stærð og þunga veiddra fisktegunda því fölsunin er alger.

Bátur á leigukvóta landar ekki smáþorski af því að skipstjóri sem væri svo heimskur að láta það henda sig hefði aldrei náð pungaprófinu.

Árni Gunnarsson, 31.5.2009 kl. 01:07

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Árni.

Þetta er rétt, forsendur viðskiptalegrar rökhyggju eiga sér ekki stoð, né heldur að okkar þjóð sé boðlegt að slík aðferðafræði sé við lýði um áraraðir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.5.2009 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband