Oh boy, hefst nú vinstri forsjárhyggjan....

Ætli það væri nú ekki nær að fara í það verkefni að skilgreina þjónustu tannlækna undir almenna heilbrigðisþjónustu, áður en farið er í að reyna að forða mönnum frá neyslu með sköttum sem sjaldan hefur reynst vel.

kv.Guðrún María.


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Benediktsson

Boj ó boj, sammála er ég. Mér finnst líka orðið aðkallandi að skoða verðlagningu tannlækna. Rúmlega hálftíma heimsókn barnsins míns kostaði rúm tuttuguþúsund. Þar af kostaði 8000 krónur að skorufylla tvær tennur! Hvernig geta þeir rökstutt þennan kostnað?

Hækkun tannlæknakostnaðar er út yfir öll mörk hvort sem um er að ræða hóf eða nauðsyn. Og pöpullinn borgar ekki 25% eins og meiningin er með tannlæknakostnað barna heldur 60% af upphæðinni. Það er vænlegra að taka á tannlæknum en að leggja á sykurskatt. Stjórnarflokkarnir eru strax farnir að leggja drögin að næsta ósigri.    

Guðmundur Benediktsson, 15.5.2009 kl. 00:16

2 Smámynd: kallpungur

Skattheimskustjórnin er bara rétt byrjuð að kreista neytendur, bíddu bara. Forjárhyggja er bara fínt orð yfir hrokafulla besservissera. Íslendingar eru nú búnir að kjósa yfir sig þennan skríl sem nú hafa hreiðrað um sig í stjórnarráðinu eins og hugmynafræðilegur myglusveppur. Í stað þjóðstjórnar fáum við Þjófstjórn. Við fáum greinilega það sem við eigum skilið. Fyrst látum við bankana glepja okkur og síðan þegar allt hrinur eins og spilaborg hlaupum við undan brakinu beint í fangið á pólitískum sníkjudýrum og tækifærissinnum.

kallpungur, 15.5.2009 kl. 00:18

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er mikið rétt að tannlæknar hafa vægast sagt haft frjálsar hendur varðandi verðlagningu og enginn sagt nokkurn skapaðan hlut við því.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.5.2009 kl. 00:54

4 Smámynd: Helgi Kr. Sigmundsson

Sæl Gmaría.

Þetta er auðvitað bara byrjunin.  Forsjárhyggjan er tekin við!

Helgi Kr. Sigmundsson, 15.5.2009 kl. 01:00

5 identicon

Það var samt vitað mál að aukin skattheimta væri nauðsynleg, hvernig á annars að borga skuldir ríkissjóðs? Svo það er bara spurning hvort þið viljið hækkta tekjuskatt eða neysluskatt...

Margrét Birna Björnsdóttir (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 09:21

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það á að lækka tekjuskatt sem fyrir löngu síðan hefði átt að vera raunin i stað þess að skattpína þorra manna í einu þjóðfélagi, það atriði hefði að sjálfsögðu skilað sér í neysluskattlagningunni meðan góðærið varði,

Ég hræðist það mjög að menn reyni að fara út í skattlagningu sem engin heil  brú er í við þær aðstæður sem nú eru uppi, varðandi atvinnuleysistölur þær sem til staðar eru.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.5.2009 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband