Málefni ofar mönnum.

Eiginhagsmunapot, og alls konar deilur og erjur um menn á kostnað málefna, innan stjórnmálaflokka hér á landi er löstur á starfi stjórnmálaflokka.

Það þarf ekki að fara um það mörgum orðum hve mikil timasóun það er að þurfa að taka þátt í slíku þegar ekki virðist nokkur einasti möguleiki að viðhafa eðlilegar aðferðir við það að setja málefni ofar mönnum hvarvetna.

Innra skipulag, eftirfylgni og aðferðafræði vegur vissulega þungt í þessu sambandi, hvað varðar það atriði að endalaust sé það hægt að deilur um menn verði ofar málefnum hvarvetna.

Veldur þar hver á heldur og eftir höfðinu dansa limirnir, og forystusveit flokkanna stendur þar í ábyrgð mála.

Ég lít svo á að hver flokkur er starfar í stjórnmálum skuli viðhafa opna fundi á sínum vegum um mál öll eins oft og mögulegt er þar sem aðkoma flokksmanna og kjósenda að starfi og mótun stefnu í málefnum er í hávegum hafður, en flokkar sem eiga kjörna fulltrúa á þingi fá fjármuni frá skattgreiðendum meðal annars til þess hins sama að ég tel.

kv.Guðrún María.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað ég er að vilja upp á dekk er það að ég er í áhöfn með Guðjóni Arnari, Formanni frjálslynda flokksins. Ég var kosin í miðstjórn Frjállynda flokksins á síðasta landsþingi því sama og Ásgerður Jóna var kosin sem varaformaður en hún stóð ekki sína vakt nema níu daga eins og þér er kunnugt. Ef hún kunni ekki við starfsmenn flokksins hefði hún ekki átt að munstra sig í áhöfnina og stinga svo af vegna þess að hún fékk ekki allt sem hún vildi. Svo er ég sjálfstæð kona með sjálfstæðar skoðanir og vil einnig minna þig á þá staðreynd að það er málfrelsi í okkar ágæta landi.

Ólafía Herborg (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 20:17

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl aftur Ólafía.

Það er nú nokkuð sérkennilegt að nýta málfrelsið til þess að ráðast að konu sem þú hittir fyrst á landsþinginu síðast, án þess að vita hvað sú hin sama kona hafði tekið sér fyrir hendur í flokki þessum frá því hún kom.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.3.2009 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband