HVERJIR skópu skilyrði til hins ævintýralega Matadorleiks íslenskra fyrirtækja ?

Svarið er sitjandi stjórnvöld í landinu, með því að undirgangast alþjóðlega skilmála landamæraleysis fjármálafyrirtækja og andvaraleysi gagnvart þróun hins íslenska fyrirtækjaumhverfis hér á landi.

Þrír stjórnmálaflokkar hafa þar dansað vangadans, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Framsóknarflokkur, aðrir hafa andmælt þróun mála.

Séu lög svo illa úr garði gerð að menn geti innan ramma þeirra gert þá hluti sem við nú horfumst í augu við þá þarf að endurskoða lögin, svo mikið er víst og það í allri Evrópu ekki einungis hér á landi.

Innihaldi lagaumhverfið frumskógarlögmál, án samkeppni, þá hlýtur að þurfa betri vitund um framkvæmd laga frá Alþingi, annað verður ekki séð.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Jón Ásgeir selur snekkju og flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já hverjir skópu skilyrðin, góð spurning. Þeir sem bera mestu ábyrgðina eru Steingrímur j. Sigfússon. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Ólafur Ragnar Grímsson með því að koma í veg fyrir fjölmiðlalögin sem svo gerði Útrásarvíkingunum kleyft að eiga alla fjölmiðlana, og þeir komu í veg fyrir að gagnrýnar greinar um útrásina birtust. Sá sem upphafinu veldur veldur miklu. Svo mærði þetta lið þessa gutta óspart og sparaði ekki fúkyrðin um Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hann skyldi voga sér að gagnrýna útrásar guttana.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 04:42

2 Smámynd: corvus corax

Ómar athugasemdarskrifari Sigurðsson hefur skrítna hugsun. Að SJS, ISG og ÓRG beri mestu ábyrgðina á hruninu út af fjölmiðlafrumvarpinu segir hann, maðurinn er galinn! Það er fyrst og fremst sjálfstæðisflokkurinn og ber þar hæst Davíð Oddsson og Geir Haarde fylgir fast á eftir. Svo hvílir ábyrgðin á framsóknarflokknum með sem var ambátt sjálfstæðismanna um árabil. Þar ber mesta sök Halldór Ásgrímsson, gjörspilltur glæpon úr kvótaættum. Samfylkingin og VG eiga engan þátt í hruninu, það er alfarið verk sjalla og frammara.

corvus corax, 15.3.2009 kl. 07:33

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Það virðist vera með alla að þeir vilja ekki telja upp sinn foringja en ef við leggjum saman ásakanir Ómars og Corvus en sleppum að hofra á hverjum málið er ekki að kenna þá kemur þetta rétt út.

Einar Þór Strand, 15.3.2009 kl. 08:41

4 identicon

Davíð Oddsson var formaður Sjálfstæðisflokksins og stjórnaði
einkavinavæðingunni.
 Hann gerðist síðan æðsti embættismaður fjármála Íslands.
 Hann ber ábyrgð á því að skuld íslenska ríkisins í dag er 12 föld
þjóðarframleiðsla þjóðarinnar.
 
Hann átti að sjá til þess að íslenska þjóðin væri ekki þátttakandi í þeirri áhættu sem sem fylgdi bankastarfseminni. 
 
 Davíð Oddsson er maðurinn sem eyðilagði Ísland.

David ‘de bankrover’ "bankaræninginn"
 
http://www.volkskrant.nl/economie/article1155890.ece/David_de_bankrover_moet_opstappen
http://www.icenews.is/index.php/2008/10/13/richard-portes-analyses-the-shocking-errors-of-icelands-meltdown/

Jón (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 09:32

5 Smámynd: Einar Þór Strand

Jón þetta er einföldun hjá þér og það veistu Davíð ber ábyrð en það gera líka ýmsir aðrir stjónmálamenn sem vilja kenna Davíð um allt, og tek fram að ég er ekkert að verja Davíð bara þoli ekki svona einfaldanir.

Einar Þór Strand, 15.3.2009 kl. 10:02

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sú aðgerð að einkavæða bankana á þann hátt sem gert var, var pólitískt stórslys sem kostar okkur Íslendinga yfir tvöþúsund milljarða. 

Einn milljarður tapaður á dag,  samfellt í 5-6 ár !  (frá einkavæðingu)

Hverjir einkavæddu ?  Fyrir þá sem ekki muna skal minnt á að það voru Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn.  Þeir bera því mesta ábyrgð.

Komment Ómars Sigurðssonar er ekki svaravert. 

Anna Einarsdóttir, 15.3.2009 kl. 13:17

7 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Guðrún María, ég er að mestu sammála þér. Mér finnst samt VG sleppa of vel hjá þér, því að stjórnarandstaða þeirra var ávallt arfaslök. Þeir voru alltof oft á móti öllu, og komu sjaldnast með nokkrar vitrænar breytingatillögur. Þeir máluðu sig út

í horn með neikvæðni.

Svo vil ég minna Önnu Einarsdóttur á, að það var Jón Balvin Hannibalsson, sem telur sig eiga allan heiður af því að hafa komið Íslendingum inn í EES. Maður skal í endann skoða upphafið, ekki satt ?

Með kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 15.3.2009 kl. 14:42

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég mun engan verja, hvar í flokki sem hann er, af þeim sem rústuðu íslenskum efnahag.

Innganga í EES - ein og sér - hefði ekki komið okkur í þessa svakalegu skuldastöðu Kristján.  Einkavæðing bankanna reyndist vera afdrifaríkur afleikur.

Ekki satt ?

Anna Einarsdóttir, 15.3.2009 kl. 15:03

9 identicon

Sjallar og framsókn ráku ekki þessa banka. Það voru bankastjórarnir. JÁJ skamtaði sínum fyrirtækjum lán og víkjandi lán frá GLITNI þetta er búið að koma fram í mörgum greinum og skírslum. Hvernig stendur á því að GLITNIR lánar JÁJ um 30 milljarða frá mars í fyrra til loka bankans, þegar búiða var að loka á allar lánalínur erlendis. Ætla menn virkilega að halda því fram að þetta hafi verið að undirlægi bankans. Ég á voðalega bágt með að trúa því. En bíðum það á eftir að koma svo margt skítugt í ljós að þetta er nú bara haleluja söngur hvort að einhver er að selja snekkju og flugvél eða ekki. Gs.

Guðlaugur (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 20:15

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll.

Get tekið undir það að VG sleppi of vel.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.3.2009 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband