Af hverju mátti Ástþór ekki vera einn af fulltrúum lýðræðisins ?

Voru ekki menn með grímur á fundinum, hver er munur á því og þess að vera í jólasveinabúningi ?

Mótmælafundur er varla besti vettvangur til þess að útskúfa einhverjum einum frá því að taka þátt, í slikri samkomu en það skal viðurkennt að ég var ekki þarna og hef einungis lesið fréttir af þessu.

Af því sem marka má af fréttunum þá virðist þetta hafa verið fremur neyðarlegt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Lá við að fundurinn leystist upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bara Steini

Soldið pínlegt.

En maður hefði nátturulega átt að mæta eins og aðrir borgar tímanlega og biðja um orðið eins og aðrir.

Þetta var hálf misheppnað hjá honum.

Bara Steini, 9.1.2009 kl. 01:48

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Snarlega hélt ég að ég hefði svarar.  Ástþór er mikill mótmælasinni...verður ei af honum tekið en...hann er of mikill átróðníðingur til að vega þungt.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 9.1.2009 kl. 01:52

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Skil ekki alveg, af hverju hann einn má ekki halda fram sínum skoðunum eins og aðrir ?

Maðurinn hefur boðið sig fram til forseta og hlotið brautargengi sem slíkur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.1.2009 kl. 01:59

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeir grímuklæddu virtu fundarsköp það gerði jólasveinninn ekki....frekar en endranær.

Þú ert fundavön kona og ættir að skilja mun málefnalegri og ómálefnalegri framkomu.

Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 02:07

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Sigrún.

Varst þú á þessum fundi ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.1.2009 kl. 02:17

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já, að sjálfsögðu.  Getur lesið mína upplifun af fundinum á mínu bloggi.

Síðasti jólasveinninn sem "ég trúi á" fór til fjalla á þrettándanum

Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 02:19

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Skil eigi að síður ekki alveg þessa fóbíu gagnvart Ástþóri úr röðum mótmælanda, það eitt að hann fái ekki að vera með ef hann vill mótmæla er ekkert gott fyrir málstaðinn, að mínu viti.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.1.2009 kl. 02:24

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Veit ekki hvort einhver "fóbía" er í gangi gagnvart honum.  Mér persónulega finnst hann skemma mest fyrir sjálfum sér, t.d. með offorsi hér inni á blogginu.

Þegar við sitjum fjölmennan fund er mjög brýnt að fólk hlýði reglum um fundarsköp, því annars fer allt í vitleysu.  Fundurinn hefði getað flosnað upp vegna "öfgafullrar" innkomu Ástþórs en því var bjargað sem betur fer og flestir voru sáttir.

Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 02:40

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Það versta er að öll umræðan um þenna frábæra fund fjallar um þetta pínlega atvik - það er e.t.v. það sem honum gengur til - en fundurinn skilaði gífurlega miklu sem enginn nennir að tala um af því fjölmiðlar einblína á þetta manngrey og árás hans á fundinn.

Þór Jóhannesson, 9.1.2009 kl. 04:24

10 identicon

Sigrún JÓnsdóttir talar um að vera fundarvanur og fara eftir fundarreglum. Ekki hvarflar að mér að mótmæla þessu - hvet alla til þess að læra fundarsköp. Hitt er annað Sigrún - þær leikreglur lýðræðisins sem við - flest - virðum hafa mótmælendur fótum troðið og því er undarlegt að sjá svona frá ykkur.

Sesselja - "átróðníðingur"??? Drottinn minn dýri - maðurinn mætir í jólasveinabúningi og langar til þess að fá orðið. "Átroðníðingur" hvaða nafn setur þú á þá félaga þína sem brjóta, bramla og meiða?

Það sannaðist enn og aftur - og nú á ykkur - að sumir eru jafnari en aðrir.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 04:53

11 identicon

Ríkistjórnin hefur ekki farið eftir leikreglum lýðræðissins, en það hafa flestir mótmælendur sem betur fer gert.

Sigurður Ingi (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 07:52

12 identicon

Hvar sem Ástþór Magnússon kemur er ófriður. Það þykir furðu sæta að hann skuli því starfa undir í þágu Friðar 2000. Hver sponsar hann, spyr ég þar sem ég veit að hann er ekkert að vinna? Ég var á fundinum, Ástþór gengur svo augljóslega ekki heill til skógar, kallar fundinn kommúnisatasamkomu, ég er óflokksbundin, óháð og er mótmælandi. Þar sat lögreglan, prestur úr Hafnarfirði og fleiri "kommúnistar" skv. skilgreiningu Ástþórs á fundinum sem óð inn á fundinn með látum og var ekki kominn til að taka þátt í neinum fundarhöldum heldur sveiflaði staf í allar áttir og með poka fullan af kærum sem hann ætlaði að æða með upp á svið til lögreglunnar en var tekinn af öryggisvörðum og leiddur út vegna óspekta. Annars er Ástþór Magnússon bara jólasveinn og væri best geymdur uppi í fjöllum að mínu mati. Hver nennir að spekúlera í því hvað Ástþór hefur að segja? allavegana ekki ég og mér finnst nóg um ástand þjóðfélagsins, að það síðasta sem ég geri er að ræða ófriðinn 2000 sjálfan og taka mark á bullinu í honum. Ástþór ætti þá bara að skipuleggja sín eigin mótmæli en það myndi bara enginn mæta.Fundurinn í gær var virkilega góður, menn tókust á og það voru margar frábærar málamiðlanir gerðar. Þegar að fólk sá hver jólasveinninn var mannskapurinn nú ekki lengi að setjast niður aftur. Ástþór gagnrýnir fólk með grímur, fólk sem leyfir börnum að tjá sig opinberlega en mætir síðan í jólasveinabúningi á Borgarafund. Það er ekki einu sinni hægt að ansa þessu.

Sigurlaug (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 09:33

13 identicon

Varst þú ekki að svara þessu Sigurlaug ? 

Það er augljóst að það eru bara sumir jafnir hjá VG, maður hefði nú haldið að Ástþór félli í kramið enda klæddur flokkslitunum  ;)

kristinn (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 09:49

14 identicon

Ef þú hefðir verið á fundinum Kristinn þá hefði þú líka heyrt það að ég var stödd þarna sem talsmaður Nýrra Tíma. Til að þú áttir þig á því hvað við viljum þá er það fyrst og fremst hæft fólk og málefni  en ekki flokka, til að taka við af stjórnvöldum þessa lands og tilstjórna þessu landi af einhverju viti. Þar sem þú ert greinilega hlynntur stjórn þessa lands, sennilegast einn af þeim sem afneitar því að flokkurinn þinn er búinn að vera þá bið ég þig um að skilja það að ég reikna ekki með að sjá neinn sjálfstæðismann nema kannski Óla Klemm eða neinn úr Samfylkingunni á mótmæla eða borgarafundur og því skyldi það þá vera undarlegt að sjá fólk úr öðrum flokkum á mótmælunum, sérstaklega VG sem mælast víst með mesta fylgið og það gerir þig og þína meir en lítið óttaslegna?

 

 
STEFNUYFIRLÝSING NÝRRA TÍMA

VILJI OKKAR ER AÐ VIÐ HÖGUM OKKUR EINS OG SIÐMENNTUÐ ÞJÓÐ

- VIÐ KREFJUMST ÞVÍ RÉTTLÆTIS FYRIR ALLA !

Vilji okkar því að við hröðum rannsókn á þessum grafalvarlegu málum, hugsanlegum lögreglurannsóknum og dómsmálum sem mest má til að þjóðin finni aftur til innri friðar, geti hafið það uppbyggingarstarf sem framundan er

Við lýsum því yfir að ríkisstjórn Íslands er rúin trausti og krefst þess að þing verði rofið og boðað til kosninga eigi síðar en næsta vor.

Við treystum ekki þeim sem kveiktu þá elda sem nú brenna til að leiða slökkvistarfið. Stjórnmálamenn, fjármálamenn og stjórnsýsla eru flækt í gagnkvæma hagsmunagæslu gróðafíknar og valdagræðgi.

Við krefjumst þess að gripið verði tafarlaust til markvissra aðgerða til að bjarga fjárhag heimilanna og lífvænlegra fyrirtækja og óhikað verði gengið að þeim auðmönnum sem ábyrgð bera á hruninu.

Samhliða endurnýjun fullveldisins þarf að fara fram víðtæk alþjóðleg rannsókn á öllu því sem miður hefur farið undanfarna áratugi, þar sem aðgangur rannsóknarnefnda og fræðimanna að gögnum verður óhindraður.

Við krefjumst þess að Ríkisstjórn Íslands víkji nú þegar!

VIÐ VILJUM UTANÞINGSTJÓRN EÐA NEYÐARSTJÓRN

VIÐ VILJUM VELJA FÓLK EN EKKI FLOKKA

ÞVÍ SAMSTAÐA ER AFL SEM EKKERT FÆR STAÐIST!

Sigurlaug (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 10:07

15 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Finnst íslenzkur jólasveinn mun betur hefði átt heima þarna en
grímuklæddur anarkisti. Grímuklæddi anarkistinn var boðið að
halda ræðu meðan íslenzki jólasveinninn var með ofbeldi hent út.
Skil þetta ekki alveg, þar sem anarkisti er stjórnleysingi en var það
ekki stjórnleysið sem olli bankahruninu og kreppu?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.1.2009 kl. 20:32

16 Smámynd: Bara Steini

Anarkistinn fylgdi fundarformi þó skrýtið sé.......

Bara Steini, 9.1.2009 kl. 22:11

17 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er aldeilis að þetta er hitamál að sjá má, verð að taka undir skoðun næstsíðasta ræðumanns.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.1.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband