Er þetta frétt ?

Fyrirsögn þessarar fréttar hér, þar sem ein setning er tekin úr yfirlýsingu fyrrum stjórnenda Kaupþings banka, þess efnis að engar ólögmætar færslur hafi átt sér stað, þ.e.

Engar ólögmætar færslur.

er fullyrðing sett fram af fréttamanni við fyrirsögn fréttar.

Fyrir það fyrsta má velta því fyrir sér hvort eðlilegt megi teljast að birta þessa yfirlýsingu á sama tíma og efnahagsbrotadeild lögreglu er með málið í rannsókn.

Í öðru lagi er það ótrúlegt hvernig fréttafrásagnir almennt þrífast á þessi segir þetta, hinn segir hitt.

þarf ekki eitthvað að vega og meta áður en haldið er af stað ?

kv.gmaria.

 


mbl.is Engar ólögmætar færslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Já Guðrún María þetta er frétt. Ástæðan er sú að í fjölmiðlum hefur komið fram að þeir félagar og yfirstjórnendur Kaupþings liggi undir grun að hafa millifært um 100 milljarða yfir á reikninga erlendis, rétt fyrir fall bankanna. Það að þeir mótmæli þessu er mikil frétt. Auðvitað tekur það ekki málið úr rannsókn. Í fyrsta sæti Frjálslynda flokksins var frambjóðandi sem hefði sómt sér vel á þingi. Yfirveguð, skynsöm og lífsreynd. Aðrir á listanum mættu taka hana sér til fyrirmyndar varðandi málfutning.

Sigurður Þorsteinsson, 30.12.2008 kl. 07:53

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Fyrirgefðu Sigurður, ég skil ekki alveg hvað þú ert að hnýta í mig, frekar en hvað veldur því hinu sama ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.12.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband