Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður gegn fjármálabraski kvótakerfisins.

Það er hverjum ljóst sem vita vill að kvótakerfið og það framsalsbrask sem lögleitt var, leiddi að núverandi ógöngum í efnahagsástandí ísensku þjóðarinnar. Það eru gömlu flokkarnir hins vegar ekki tilbúnir til þess að viðurkenna, því allir hafa þeir meira og minna verið þáttakendur í að samsinna þessu ástandi öll þessi ár.

Sambræðingur vinstri jafnaðarmanna allra handa sem nú telur tvo flokka ekki einn eins og til stóð í upphafi hefur dyggilega þagað þunnu hljóði gagnvart því kvótakerfi sjávarútvegs hér á landi og þróun þess.

Eftir að Frjálslyndi flokkurinn kom í fyrstu tveimur mönnum á þing fjarlægðust gömlu flokkarnir enn að taka á þessu máli sem sett hafði eitt þjóðfélag á annann endann.

Kjörtímabilið næsta tvöfaldaði Frjálslyndi  flokkurinn fylgi sitt og fékk fjóra menn kjörna en flokknum tókst þá að draga umræðu um kvótakerfið að einu aðalmáli þeirrar kosningabaráttu.

Þáverandi tvíeyki Samfylkingar þau Össur og Ingibjörg voru illa ef eitthvað undirbúin undir umræðu um þetta mál, Vinstri Grænir gátu ekki tekið undir með Frjálslynda flokknum heldur.

Þessir flokkar bera því jafn mikla ábyrgð og þáverandi stjórnarflokkar Framsókn og Sjálfstæðismenn hvað andvaraleysi varðar.

því miður.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ef Frjálslyndiflokkurinn á að lifa verður hann að mynda sér skýra stefnu í stjórnun fiskveiða meðal annars.Stefnu sem byggir á staðreyndum en ekki þjóðnýtingu með kauplausum sjómönnum og eyðingu landsbyggðar. kv.

Sigurgeir Jónsson, 29.12.2008 kl. 01:02

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurgeir.

Frjálslyndi flokkurinn hefur skýra stefnu í þessu máli og hefur haft frá upphafi þrátt fyrir mismundandi orðaval í þeirri hinni sömu stefnu á hverjum tíma.

Við vitum að það þarf að afleggja brask hvers konar.

Við vitum það einnig annmarka kerfisskipulagsins er við lýði hefur verið mál telja í hundruðum athugasemda frá því að vera þjóðhagslega óhagkvæmt á heildina litiið til þess að sóa og eyða í formi offjárfestinga og hvata að brottkasti fiskjar.

Við vitum að mannréttindi hafa verið brotin á íslenskum sjómönnum og þar með þjóðinni allri varðandi aðkomu að atvinnugreininni.

Við vitum að það er meira af þorski í sjónum en fræðingarnir telja að sé, sökum þess að sjómenn þekkja miðin og umgangast þau.

Við vitum að það er mjög auðvelt að smíða betra fiskveiðikerfi fyrir land og þjóð en nú er til staðar hér.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 29.12.2008 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband