Guðjón Arnar Kristjánsson lýsir upplifun almennings í landinu af stjórnarháttum.

Mínir menn drógu fram aðalatriði þess sem einkennt hefur þetta fyrsta ár sitjandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingingar, sem er tal út og suður um hin ýmsu mál þar sem annar flokkurinn hefur talað þetta og hinn hitt.

Það var allt að því nöturlegt að heyra forsætisráðherra hreykja sér af því að hækka skattleysismörk innan við tíu þúsund krónur þegar flokkur hans hefur átt þátt í því að viðhalda þeim hinum sömu mörkum frystum síðan 1995, sem gert hefur það að verkum að minnsta kosti tvær þjóðir búa í landinu, vegna ofurskatttöku af tekjum hins almenna launamanns á vinnumarkaði.

Á sama tíma virðist allt í lagi að fella niður fjármagnstekjuskatt milli ára sem nemur tugum milljarða króna á fyrirtæki, vegna lækkunnar prósentu þar að lútandi.

Hinn almenni launamaður á vinnumarkaði hefur nefnilega ekki aðeins mátt þola þessa ofurskattöku launa heldur einnig ofálag starfa einmitt i störfum hins opinbera þar sem hvers konar tímabundnar launauppbætur vega lítið þegar hamagangurinn hefur jafnvel tekið toll af heilsunni og kostnaðurinn lendir í heilbrigðiskerfinu fyrir vikið.

Máltækið " spara aurinn en kasta krónunni " kemur fyrst upp hugann í því sambandi og svo virðist sem börn og gamalmenni rúmist ekki inn í reikningsformúlum hagstærða hvers konar, er varðar eitt þjóðfélag lengur og samvera fjölskyldu ekki heldur.

Það atriði ráðamenn einnar ríkisstjórnar geti ekki sammælst um vinnubrögð í formi yfirlýsinga hvers konar veikir sitjandi ríkisstjórn og á ekki að bjóða almenningi í landinu.

Semji menn um að vinna saman þá gefur annar flokkurinn ekki út yfirlýsingu á skjön við hinn, flóknara er það ekki.

kv.gmaria.


mbl.is „Ósamstíga stjórn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Guðrún María!Þeir stóðu sig vel félagarnir og "eldhúsdagsjómrúarræðan"hjá"okkar manni"manni var fín.Ávallt kært kvödd.

Ólafur Ragnarsson, 28.5.2008 kl. 04:01

2 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl Guðrún, okkar menn stóðu sig frábærlega í gærkveldi.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 28.5.2008 kl. 10:03

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála . kv .

Georg Eiður Arnarson, 28.5.2008 kl. 10:30

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já þeir voru flottir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 29.5.2008 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband