" Og refurinn elti hænuna og hænan elti hundinn, hundurinn elti gæsina og gæsin elti köttinn í Mylluhúsinu við myllulækinn. "

ER þetta ágæt yfirskrift líðandi stundar á stjórnmálum sveitarstjórnastigsins í höfuðborg landsins. Fráfarandi meirihluti í borginni er sár og svekktur og allt í einu er Mogginn orðinn að andstæðing í pólítik að virðist ef merkja mátti sams konar málflutning þeirra Oddnýjar og Dags í Silfrinu. Fínt hjá þeim að finna dagblað sem sökudólg ófaranna eða hvað ?

Silfrið var annars eins og venjulega góður umræðuþáttur sem til dæmis dró fram þann vitundarskort á siðgæði sem stjörnublaðamenn eru enn undirorpnir þar sem sá hinn sami sagði skotleyfi hafa verið gefið út á viðmælanda í þessu tilviki þingmann Kragans.

Afskaplega ósmekklegt og þarna vildi ég hafa séð athugasemd af hálfu þáttastjórnanda þessa þáttar.

Hér var nefnilega um að ræða lágkúrulega sölutrixmennsku stjörnublaðamannsins í beinni útsendingi til að auka kaup manna á eigin blaðsnepli.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Oddný var sér til háborinnar skammar. Af því Mogginn var ekki henni að skapi upplýsti hún í Sílfri Egils að segja Mogganum upp. Þvílíkur hroki og pólitísk lítilmennska!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.1.2008 kl. 01:33

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Óttalega bjánalegt Guðmundur en mér segir svo hugur um að skilaboðin um að gera Moggann að blóraböggli sem einnig var aðalatriðið hja Degi hafi komið beint frá formanni flokksins.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.1.2008 kl. 01:39

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Akkurat og einmitt. Allar þessar kraumandi væringar innan stjórnarflokkanna eiga eftir að draga STÓRAN

pólitískan dylk á eftir sér.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.1.2008 kl. 01:45

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er mjög líklegt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.1.2008 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband