Áramótin eru dulúðugur tími, uppgjörs og íhugunar.

Ég hef alltaf trúað á álfa og huldufólk sem hluta af okkar tilveru og hef ljósin kveikt á nýársnótt, svo komi þeir sem koma vilja og farið þeir sem fara vilja. Sjálf hefi ég ekki orðið vitni að einhverju en móðir mín heitin sagði mér sögu af slíkri upplifan.

Hún sem ung kona var á ferð úti í náttúrunni og varð þess vör að hún var ekki lengur með hálsnisti sem hún hafði haft.

Hún staldraði við og gekk um og leitaði nistisins.

 Hún beygði sig niður til að leita að nistinu við stein einn og heyrði þá allt í einu söng i steininum, undurfagran söng og varð mjög undrandi við.

Nistið fann hún ekki.

Æ síðan sagði hún þessa sögu, til mín sem barns og fram eftir aldri, því þessi hennar upplifan var með því móti að ríka þörf hafði hún til frásagnar.

Sagan er því með mér áfram eðli máls samkvæmt.

kv.gmaria.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Álfar hafa reynst mér greiðviknir, segi þér frá því síðar.

Óska þér gæfuríks komandi árs og takk fyrir öll hin. 

Sigurður Þórðarson, 31.12.2007 kl. 02:46

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Sömuleiðis óska ég þér minn vinur gæfuríks komandi árs.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.12.2007 kl. 02:48

3 Smámynd: Atli Hermannsson.

Sæl Guðrún María. Ég óska þér og þínu (huldu) fólki gæfu og gengis á komandi ári.

Atli Hermannsson., 31.12.2007 kl. 16:14

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Álfar og huldufólk er til ekki síður en við, en eru bara á öðru tíðnisvíði
eins og allir sem fara yfir móðuna miklu. Amma mín sagði mér eina
slíka í bernsku. Og svo bara GLEÐILEGT ÁR Guðrún og takk fyrir góða pisla og málefnalegar umræður á árinu sem er að líða.. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.12.2007 kl. 16:23

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir.

Gleðilegt ár með kærri þökk fyrir árið sem er að líða.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.1.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband