Var eftirlaunafrumvarpið hvati að endurnýjun á Alþingi ?

Óhjákvæmilega kemur sú spurning upp í hugann hvort eftirlaunafrumvarp það sem lögleitt var geri það að verkum að endurnýjun þingmanna á Alþingi af hálfu starfandi stjórnmálaflokka í landinu eigi sér frekar stað nú en áður.

Samtímis veltur upp í huga manns sú spurning hvort þetta starf þ.e. þingmannsins sé illa launað miðað við laun almennt í þjóðfélaginu.

 Miðað við laun hins almenna verkamanns tel ég að starfið sé all vel launað en ef viðmið er sett hins vegar á hæstu laun forstjóra fjármálafyrirtækja í íslensku starfsumhverfi þá kann hugsanlega að verða til sami mismunur og millum launa verkamannsins og þingmannsins.

 

kv.

gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband