Hvað á slík mismunun landsmanna, að vera lengi við lýði ?

Guðjón Arnar dró fram hið stórkostlega óréttlæti og mismunun sem íbúar sjávarþorpa búa við og hafa búið við nú í áraraðir þess efnis að vera hugsanlega sviptir atvinnu á einni nóttu, vegna kerfis sem heimilar, framsal aflaheimilda millum útgerða án skilyrða. Hann taldi upp byggðirnar allt í kring um landið sem allar hafa fundið fyrir annmörkum þessa kerfis. Góð ræða hjá Guðjóni eins og hans er von og vísa.

kv.gmaria.


mbl.is Guðjón Arnar: Fólk í sjávarbyggðum nýtur ekki raunverulegs jafnréttis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Kristinsson

en er ekki hægt að gera eitthvað annað eins og sumir flokkar segja, til dæmis að fá álver eða olíuhreinsunarstöð, held að fiskurinn geri okkur ekki að vel borgandi launþegum, enda virðist næstum eingöngu útlendingar vinna í fiski

Haukur Kristinsson, 31.5.2007 kl. 22:58

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Haukur.

Núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi heftir nýliðun og aðkomu einstaklinga í atvinnugreinina, sem einyrkja við sjósókn. Einyrkja sem skapa sér og samfélagi sínu atvinnu allt í kring um land ef frelsi til þess arna væri að finna í þessu kerfi. Einyrkja sem greiða skatta og skyldur til samfélagsins, ásamt því að ástunda fiskveiðar í sátt við lífríkið. Einyrkja sem landa fiski á markað í sínu samfélagi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.5.2007 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband