Evrópubandalagssinnar sundraðir í mörgum smáflokkum ?

Ekki virðast menn geta komið sér saman í einn flokk um það mál að ganga í Evrópusambandið hér á landi, heldur tvístrast fólk um þá hina sömu afstöðu á miðjunni til hægri og til vinstri að virðist.

Það er jú lýðræðið og ekkert um það að segja annað en veldur hver á heldur, en ég öfunda engan af því að standa í stofnun nýs stjórnmálaflokks, svo mikið er víst.

kv.Guðrún María. 


mbl.is Jórunn segir skilið við Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

ESB mál er ekki eins flokks mál og flokkar ekki eins ESB-máls flokkar. Það er hægt að mynda ríkisstjórn um m.a. inngöngu í ESB það dugar til að koma slíku máli í farveg þess að ljúka viðræðum og setja málið í þjóðaratkvæði eins og staðan er núna.

Jón Ingi Cæsarsson, 23.4.2014 kl. 06:39

2 identicon

Sæl.

Óskhyggja og/ vanþekking þessarar ágætu konu er strax gerð öllum opinber í upphafi fréttarinnar: "Jórunn segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að Ísland eigi að láta reyna á samninga við Evrópusambandið og halda viðræðum áfram."

Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Ekki er um neinar samningaviðræður að ræða!! Verið er að ræða upptöku okkar á reglum ESB enda sóttum við um inngöngu í ESB en ekki öfugt. Þetta er stóri misskilningurinn, ekki er um eiginlegar samningaviðræður að ræða og eins og auðvelt er að sjá á netinu og sjá má í fyrstu efnisgrein þessarar síðu og þeirri síðustu:

http://europa.eu/about-eu/countries/joining-eu/index_en.htm

Svo gleyma ESB sinnar því líka í draumum sínum um evruna að við getum ekki tekið hana upp fyrr en eftir mörg ár þó við gengjum í ESB á morgun. ESB sinnar eru afar óheiðarlegir gagnvart sjálfum sér og öðrum: Þeir láta eins og um samningaviðræður sé að ræða og þeir láta eins og Maastricht skilyrðin séu ekki til.

Er ekki ferlega hallærislegt að geta ekki farið rétt með einföld atriði?

Helgi (IP-tala skráð) 23.4.2014 kl. 08:35

3 identicon

Það sama má segja um andstæðinga aðildar, þeir virðast vera í flestum flokkum sundraðir um víðan völl og ófærir um að sameinast í einum flokki.

Ufsi (IP-tala skráð) 23.4.2014 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband