150.000.- króna skattleysismörk, eina raunhæfa tekjujöfnunin.

Það er malað og hjalað fram og til baka um málefni aldraðra, öryrkja og láglaunahópa í voru samfélagi um hvernig koma megi að málum til að bæta kjör þessara hópa. Lítið sem ekkert hefur þokast í því efni og mun ekki þokast fyrr en menn þora að stíga nauðsynleg skref gegnum skattkerfið og viðurkenna að skatttaka af tekjum sem illa eða ekki duga fyrir framfærslu einstaklinga er hneisa og skömm til handa einu samfélagi. Einkum og sér í lagi til handa þeim sem taka ellilífeyri og bætur almannatrygginga vegna heilsutaps og geta í engu umbreytt þeirri stöðu sinni. Þessi sömu skattleysismörk ættu nú í dag að vera 148.000.- krónur ef þau hin sömu hefðu haldist í hendur við verðlagsþróun, en þau voru fryst á sínum tíma við tæpar 70 þús krónur og stóðu í stað allt þar til nú um áramót að voru hækkuð í 90 þús. Svo koma menn af fjöllum eins og jólasveinar og skilja ekkert í því að bótaþegar almannatrygginga skuli kvarta yfir bágum kjörum og til sé orðin gjá milli ríkra og fátækra í þessu landi en hún er til og hana þarf að brúa. Leiðin til þess liggur gegnum skattkerfið og 150 þúsund króna frítekjumark er aðgerð sem koma þarf í gegn eins og skot um leið og ný ríkisstjórn tekur við í þessu landi. Öll vinna við útreikninga á skerðingum bóta mun sjálfkrafa falla um sjálft sig innan kerfisins við þessa einu aðgerð. Þetta mun einnig hafa áhrif á útgjöld sveitarfélaga hvað varðar félagsþjónustu og fjárhagsaðstoð í því sambandi. Til þess að koma á móti tekjumissi hins opinbera í þessu sambandi skal fyrst skoða utanríkisþjónustuna og sendiherraembætti erlendis sem og kostnað við slíkt að mínu viti.

Frjálslyndi flokkurinn leggur til þessa aðgerð nú þegar sem fram kemur í stjórnmálayfirlýsingu flokksins.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband