Svo fær maður reikninga áfram þótt maður sé hættur viðskiptum við fyrirtækið....

Sú er þetta ritar flutti út á land og varð að skipta um símafyrirtæki þar sem þjónusta Vodafone er ekki til staðar á því svæði sem ég bý. Þjónustunni var því sagt upp en áfram komu reikningar og ég hafði greitt meira en ég átti að gera.

Ég hafði samband við fyrirtækið sem tók til við að leiðrétta þessi mistök, sem átti sér stað í lok febrúar og taldi ég þar með málið úr sögunni.

Nei nú fyrir nokkrum dögum fékk ég aftur reikning upphæði þjóunustunnar sem var sagt upp í nóvember á síðasta ári,  þrátt fyrir að búið væri að leiðrétta vitleysuna  þess efnis mér best vitanlegaí lok febrúar. 

 Ég leggst nú undir feld og íhuga hvernig ég á að snúa mér í þessu máli, en það skal viðurkennt að það fauk í mig.

 

kv.Guðrún María. 


mbl.is Ekki kerfisbundin skekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Guðrún,

Ég rakst á bloggið þitt þegar ég skoðaði ofangreinda frétt og vil endilega skoða af hverju þetta skildi stafa. Endilega sendu mér kennitöluna þína á bryndisa@vodafone.is og ég skoða þetta með þér.

 Bestu kveðjur, Bryndís - starfsmaður Vodafone.

Bryndís Björk (IP-tala skráð) 15.4.2013 kl. 16:40

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Bryndís.

Geri það.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.4.2013 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband