Um daginn og veginn.

Flutningar úr Hafnarfirði austur í Fljótshlíð var verkefnið síðustu helgi og ég hef kvatt Hafnarfjörð að sinni, og fagna því að koma aftur í íslenska sveit til búsetu, því ef einhver elskar íslenska sveit, þá er það ég.

Með góðra manna hjálp komst ég gegn um þessa flutninga en bræður mínir tveir báru hitann og þungann af þvi hinu sama.

Ég mun gefa mér góðan tíma til að taka upp úr kössum eins og að pakka niður, og njóta þess friðar sem hin íslenska sveit gefur af sér.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Emilsson

Kæra Guðrún Maria, svona án þess að mér komi þetta eitthvað við, en mér þykir þú aldeilis segja fréttir. Og hvað svo, ætlarðu að byrja búskap, hvað segir húsbóndinn við því?

Björn Emilsson, 15.11.2012 kl. 03:38

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

GMaría mín, vonandi verður þetta gæfuspor.  Ég veit að þú hefur átt erfiða daga og verið farið illa með þig.  En sveitin læknar ótrúlega mikið jafnvel erfið sár.  Gangi þér vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2012 kl. 12:21

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl verið þið Björn og Cesil.

Nei hér er það búseta um tíma allavega, takk fyrir góðar óskir .

kv.Guðrún Maria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.11.2012 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband