Hvernig lekur trúnaðarskjal ?

Það hlýtur nú að þurfa ýtarlega rannsókn á því hvernig trúnaðarskjal getur lekið út úr stofnun eins og Rikisendurskoðun, eða hvað ?

Eru það hagsmunir einhverra að andmælaréttur skýrslu sem þessarar sé ekki til staðar og þá hugsanlega hverra ?

Munu fyrirtækin sem hér um ræðir hafa fengið í hendur málsókn gegn ríkinu með þessari frétt ?

Spyr sú sem ekki veit.

kv.Guðrún María.


mbl.is Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Ætli það hafi verið Framsóknarmaður???

Vilhjálmur Stefánsson, 25.9.2012 kl. 00:42

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hver veit !

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.9.2012 kl. 00:47

3 Smámynd: corvus corax

Það er morgunljóst að þarna hefur verið stundaður umfangsmikill þjófnaður á peningum okkar skattgreiðenda. En það virðist ekki vera aðalmálið hjá glæpahyskinu, heldur virðist það vera alvarlegast að þjóðin fékk að vita um glæpinn! Nú fer af stað mikil rannsóknarvinna til að koma lögum yfir þá sem láku skýrslunni en þjófarnir fá að vera í friði og enginn segir af sér!

corvus corax, 25.9.2012 kl. 07:51

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sama hvernig þetta gerist þá er mér misboðið gróflega vegna stjórnunar lands vors.

Sigurður Haraldsson, 25.9.2012 kl. 07:52

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er alveg með ólíkindum og ég er ánægð með að Kastljós skyldi taka þetta til efnismeðferðar.  Komin tími til að hreinsa aðeins til.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 08:46

6 identicon

Það var mjög nauðsynlegt að leka þessu skjali og ég hvet hvern þann sem býr yfir uppl um svona rugl að leka því sem allra fyrst

DoctorE (IP-tala skráð) 25.9.2012 kl. 09:25

7 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Þetta sýnir bara hvað Ísland er gegnsýrt af spillingu. Það hefur ekkert breyst og mun seint breytast. Við erum svona á pari við spilltustu lönd Austur Evrópu og Afríku hvað rótgróna og kerfislæga spillingu varðar.

Guðmundur Pétursson, 25.9.2012 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband