Sómi Íslands, sverð og skjöldur.

Núverandi forseti og eiginkona hans hafa staðið vaktina fyrir land og þjóð og framganga forsetans til handa þjóðinni á erlendri grundu í kjölfar Icesavedeilumála er að öllum líkindum kapítuli sem færast mun í sögubækur til handa komandi kynslóðum, um skrefið sem skipti máli til þess að reisa landið úr rústum efnahagshruns.

Skrefið sem forseti með þor og kjark hafði til að bera þar sem sá hinn sami gagnrýndi meðal annars matsfyrirtæki á fjármálamarkaði, og ekki varð annað séð en orð hans skiptu máli í kjölfarið.

Eyjafjallajökull hristi svo heimsbyggðina og kom Íslandi áfram á kortið, svona eins og til að undirstrika orð forsetans.

Forsetahjónin á Bessastöðum eru sómi Íslands, sverð og skjöldur.

kv.Guðrún María.


mbl.is „Ólafur er ótrúlega vel giftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.6.2012 kl. 11:45

2 identicon

Jújú hann stóð heldur betur vaktina. Reyndar var það bara hluti þjóðarinnar sem naut krafta hans á tímabili.

Hér er hægt að lesa allt um það.

http://forsetinn.is

Einar (IP-tala skráð) 28.6.2012 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband