Gekk Makríllinn úr Evrópusambandinu ?

Það skyldi þó aldrei vera að Makríllinn aðstoðaði okkur Íslendinga í því atriði að forða okkur frá ótímabærri inngöngu í Evrópusambandið með því að flakka hingað norður !

Það væri vel.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gæti tafið ESB-viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það tek ég undir,sannarlega.

Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2012 kl. 02:48

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ef það verður raunin þá gerum við makrílinn að hátíðarrétt og borðum hann reyktann um hver Jól til að minnast fullveldisins. Nú eða hafa hann á borðum 1. des. til að minnast kraftaverksins.

Rétt matreiddur er hann veislumatur í raun.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.4.2012 kl. 03:36

3 identicon

Guðrún...með samstilltu átaki forðar Makríllinn okkur frá inngöngu í Evropusambandið....þetta er flökkufiskur sem spyr ekki um  tollahlið eða shengen múra....hann er komin hér vegna hlýnunar sjávar...Jón Steinar....þessi fiskur er með því betra áleggi....reyktur....ætlaði ekki að trúa hversu góður hann er...síðan er hann steiktur og matreiddur eins og Túnfiskur...enda af ætt hans....frábær matfiskur....afhverju er Evrópusambandið ekki að kvarta þá yfir loðnu og kolmunnaveiðum?  Þessi Evrópusambands aðild er að verða að bulli bjána sem sitja á þingi....þetta fólk þykist vera  bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti....þvílýk  hræsni!

Þorgeir Samúelsson (IP-tala skráð) 5.4.2012 kl. 03:59

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Flottur og hittinn pistill hjá þér GMaría. Ekki finnst mér gott að eiga það undir dyntóttri náttúrunni hvort við förum í Evrópusambandið eða ekki. Við getum allt eins þakkað blessaðri kreppunni fyrir björgunina því hún hefur komið fram í Evrópulöndunum ekki síður en hér og það hefur kannski opnað augu nýungagjarnra Íslendinga fyrir því að það er engin bót eða trygging fyrir góðæri að ganga þar inn. Grikkland, Spánn, og fleiri lönd meira að segja Frakkland og Þýskaland hafa verið í vandræðum. En hinir gráðugu Íslendingar þurfa alltaf að kíkja í pakkann það er vandamálið. Hitt er svo annað að þetta ástand sem hér ríkir er ótrúlega erfitt fyrir framtíð Íslands sem sjálfstæð ríkis. Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 5.4.2012 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband