Vinstri hreyfingin Grænt framboð getur slitið stjórnarsamstarfinu.

Trúverðugleiki VG er horfin þar sem flokkurinn hefur gengið á bak stefnu sinnar varðandi Evrópusambandið, og eina leið flokksins til að lifa sem flokkur er að ganga út úr núverandi stjórnarsamstarfi, með Samfylkingunni.

Áskorun Ögmundar á Össur í þessu efni varðandi kosningar um Esb er gal og gap að mínu viti þar sem þjóðin átti að fá að kjósa um það hvort gengið yrði til viðræðna sem ekki var gert.

Umsókn að Evrópusambandinu þarf að draga til baka við fyrsta tækifæri enda í andstöðu við meirihluta þjóðarinnar.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ögmundur skorar á Össur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er þér svo hjartanlega sammála Guðrún,Ögmundur hreyfði engum mótbárum,þegar samþykkt var að ganga að tilboði Samfó að sækja um ESB. Hann vissi vel að það þeir voru kosnir mikið til vegna afstöðu sinnar til umsóknarinnar í ESB. Margir sitja sárir eftir og fullir iðrunar að hafa kosið þá. Vilji þeir sína,að þeir séu ærlegir,samþykkja þeir að draga umsóknina tafarlaust til baka Mb.kv.

Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2012 kl. 02:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að fáir hafi haldið það að þetta mál væri svona alvarlegt.  Það var hreinlega logið að fólki að þetta væru aðildarviðræður, en svo hefur komið í ljós að þetta eru aðlögunarviðræður.  Þar sem ekkert er um að semja. Þessu hefur Össur og Jóhanna haldið leyndu fyrir þjóðinni og nú kemur í ljós að þau hafa líka logið að samstarfsfólki sínu.  Vonandi fara þau bæði ásamt Steingrími fyrir landsdóm fyrir landráð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2012 kl. 12:02

3 Smámynd: Minn Hugur

ESB er mjög tvísýnn möguleiki fyrir Ísland, Ísland er lítið land og hefur því lítið sem ekkert að segja innan ESB og yrði því einskonar fylgjandi í stað þess að hafa eikvað að segja um framtíðarmöguleika sína. Ég veit ekki hvort Ögmundur er að vonast eftir því að fá sæti á þingi ESB eða hvort hann er að reyna að komast undan áhvörðunartöku um framtíð landsins. Eina sem ég get sagt er burt með Ögmund áður en að hann skaðar okkar litla land.

Ég er búinn að vera búsettur í Svíþjóð síðustu 3 ár og eru ESB mál ofarlega í fréttum hér þar sem Svíþjóð er í ESB og eru ekki fagrar sögurnar sem maður heyrir hér um ESB! ESB er t.d ekki með neinn varasjóð heldur treystir hann á AGS og lán á milli landa. Einnig er mikið um það að ESB sé að gera kröfur um lagabreytingar og tekjuinnkomu (skatta) ríkja svo einkvað sé nú nefnt.

Sú kreppa sem er nú er ekki fyrsta sinnar tegundar í heiminum en hægt hefur verið að mæta henni talsvert með varasjóðum sem hafa verið byggðir upp á síðustu árum og áratugum. Það sem fólk er ekki mikið að horfa í er að til að hægt sé að laga þessa bull sem er í þjóðfélaginu þarf að gera vissar breytingar sem kannski ekki allir verði fullkomlega ánægðir með en ESB er eingin lausn til að komast framhjá því. ESB hefur verið að standa sig svo ylla að uppsagnir þjóðar úr ESB hefur komið upp á borðið.

Að Noregur sé illa statt innan evrópu af völdum þess að það sé ekki með í ESB er bull enda ef vel er að gáð stendur Noregur sig einna best af öllum norðurlandaþjóðum ef ekki öllum efrópuþjóðum í þessu kreppu bulli! Noregur er eina landið sem er með nó atvinnu nær skuldlaust og er að taka á móti norðurlandafólki til starfa í stórum stíl!

Ísalnd ættlar að fara virkja borun á Drekasvæðinu samkvæmt þeim fréttum sem ég var að lesa á mbl um daginn og ef við erum í ESB er ekkert víst að við fengum að hafa Drekasvæðið í friði fyrir þeim! Einnig er ekki gaman að hugsa um það að það kostar landið að vera með í ESB og því verið að auka í útgjöld landsins með því að vera með í ESB.

Það kann samt vera að lánamöguleikar geti verið sterkari ef við erum með í ESB en það er hægt að hækka lánamöguleika með því t.d að styrkja landsframleiðslu.

Ísland er með í NATO, UN, og Norðurlandasambandinu sem ættialveg að duga.

Ísland á nó rafmagn. Ísland hefur óendanlega möguleika í uppbyggingu tækni og framleiðslu. Ísland hefur talsverðan fisk en þó mætti skoða meira með fiskeldi. Ísland er með hreina afurð í matvælaframleiðslu. Ísland hefur náttúrufegurð sem túrisminn sækist í. Ísland er með eitt af stærstu lofthelgum í heim. Ísland hefur ull og möguleika á hampframleiðslu sem gefur góðann kost með sér t.d til fata framleiðslu. Ísland er herlaust land sem er merki um friðsæld og raunsæi á óþarfa útgjöld. Svo það er góð spurning af hverju Ísland ætti að ganga í ESB á annaðbor?

Minn Hugur, 27.2.2012 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband