Hafa forkólfar verkalýðsforystu og vinnuveitenda lækkað sín laun ?

Það væri mjög fróðlegt að fá það upp á borðið hver eru launakjör forystumanna í verkalýðshreyfingu þessa lands, sem og hjá forkólfum samtaka vinnuveitenda.

Hafa þeir hinir sömu gengið á undan með góðu fordæmi eða ekki ?

Það er mjög mikilvægt nú í aðdraganda kjarasamninga að slíkar upplýsingar séu tiltækar að mínu viti, ekki hvað síst þegar umræða um launakjör yfirmanna almennt er uppi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Jóhanna biður um launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nei, þeir hafa hækkað laun sín umfram það sem almúginn hefur fengið....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.3.2011 kl. 01:46

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Guðrún María, hvernig dettur þér í hug að spyrja svona? Að forkólfar okkar smælingjanna fari að lækka laun sín? Þvílík fyrra!!

Ábyrgðin og vinnuálagið sem þessir menn þurfa að þola er nú meira en svo að þeir geti slegið af sínum 1.500.000,- kr á mánuði. Það væri skelfilegt fyrir þá.

Svo má ekki gleima því hvað þessir menn eru búnir að vera duglegir, sérstaklega eftir hrun. Þeir hafa unnið hörðum höndum við að bjarga efnahag þjóðarinnar með því að fella niður samningsbundnar launahækkanir okkar, svo þjóðin fari nú ekki á hausinn.

Og nú ætla þeir að sjá til þess að enginn fái nú meira en 2,5% launahækkun upp í þau 15%, sem laun okkar hafa rýrnað eftir hrun.

Ábyrgðin er að sliga þessa menn og frekar spurning hvort ekki ætti að hækka laun þeirra svolítið.

Gunnar Heiðarsson, 11.3.2011 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband