Hræðslupólítík gegn Frjálslyndum í nýjum búningi hvern dag.

Það segir sína sögu um um hræðslu gömlu flokkanna við fylgisaukningu Frjálslyndra , hve mikið magn hræðsluáróðurs er á ferð gegn flokknum. Einkum er fundið að því að flokkurinn skuli hafa rætt um málefni innflytjenda líkt og þau mál eigi bara ekki að ræða í okkar samfélagi. Því miður hafa þeir flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi einfaldlega ekki staðið sína pligt í þessu efni og það kom í hlut þingmanna Frjálslynda flokksins að opna þessa umræðu. Það þarf ekki að koma á óvart að Frjálslyndi flokkurinn þori að ræða þjóðmál öll, því einn flokka hefur hann barist gegn fiskveiðistjórnunarkerfinu meðan andvaraleysi Samfylkingar og Vinstri Grænna hefur verið nær algjört í því efni og er enn. Þó er þar um að ræða eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar að takist að byggja upp fiskveiðistofna til framtíðar fyrir komandi kynslóðir. Núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa flotið sofandi áfram í áratugi og þeim þarf að gefa frí í kosningum á vori komanda.

Hræðsluáróður annarra flokka fer til þeirra hinna sömu til baka eins og búmerang í formi fylgistaps.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Aðrir flokkar eru ekki með neinn hræðsluáróður. Enda algjör óþarfi, Frjálslyndum gengur svo glimrandi vel að hræða kjósendur frá sér. 

Heiða B. Heiðars, 27.1.2007 kl. 01:31

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

ps. þætti þér ekki við hæfi að það kæmi fram hérna í þessum skrifum að þú ert einn af frambjóðendum í ritarastöðu Frjálslyndra?  

Heiða B. Heiðars, 27.1.2007 kl. 01:32

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Aðal-Heiða.

Það sem mér finnst hræðsluáróður tala ég um. Þér er svo mikið velkomið að vera annarrar skoðunar.

Ég er ég hvort sem er hér eða annars staðar og framboð mitt til ritara hefur verið tilkynnt flokksmönnum en þar er afar ánægjulegt að sjá gífurlega þáttöku kvenna sem er birtingamynd um stjórnmálaáhuga kvenna innan flokksins.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.1.2007 kl. 01:43

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ekki viss um að margar konur fyrir utan né innan flokksins taki undir það. Er annars komin ákvörðun um hvort Sigurlín (vona að ég fari rétt með nafnið hennar) verður potað út fyrir Valdimar?

Heiða B. Heiðars, 27.1.2007 kl. 01:45

5 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitta fyrir innkomu

Ólafur fannberg, 27.1.2007 kl. 01:51

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Aðal- Heiða.

Ef þú ert í flokknum þá kemur þú væntanlega og greiðir atkvæði á morgun ef ekki þá fylgist þú með framvindu mála, hvað varðar skipan á framboðslista sem verða birtir þegar þeir liggja fyrir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.1.2007 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband