Stjórnarskrárhugmyndir Evrópusambandsins, eru engu ríki til heilla.

Að vissu leyti er það hálf hlálegt að á sama tíma og ríkisstjórn sú er nú situr hér á landi vinnur að því að koma á stjórnlagaþingi til þess að endurskoða stjórnarskrá landsins, skuli einnig vera fyrir hendi aðildarumsókn að Evrópusambandinu þar sem ríki sem þangað ganga inn megja gjöra svo vel að undirgangast stjórnarskrá þá sem sambandið ákvað að búa til, við mismiklar vinsældir sambandsríkja.

Ég álít tilbúnað stjórnarskrár fyrir sambandið ein mestu mistök þess sem ekki muni enn sjá fyrir enda á.

Aðildarviðræður nú um Evrópusambandsaðils eru að mínu viti einhver sá óheppilegasti tímapunktur sem um getur, og ekki dettur mér í hug að við Íslendingar fáum einhverja " sérmeðferð varðandi aðalatvinnugrein okkar sjávarútveg" frekar en aðrar þjóðir.

Hagsmunir Evrópuþjóða eru fiskimiðin kring um landið og siglingleiðir og aðkoma í íslenskar hafnir þar að lútandi í komandi framtíð.

Enn hefur enginn getað sannfært mig um það að við Íslendingar þurfum ekki að láta meiri hagsmuni af hendi en við fáum með aðild að sambandsbandalagi þessu.

kv.Guðrún María.


mbl.is „Heilladagur fyrir Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Það held ég að Silvio Berslusconi  sé glaður í dag. Ítalir eru gríðarlega valdamiklir innan ESB og "njóta" leiðsagnar mafíuleiðtogans Berlusconi .

Fjöldi þingmanna í ESB fer eftir fólksfjölda aðildarlandanna, Finnar Svíar og Danir með sínar ca. 20 milljónir íbúa hafa ekkert að gera í ítala með um 60 milljónir manns. Svo að verði framtíðarsýn Össurar og Jóhönnu að veruleika skulum við búa okkur undir valdatafl alvöru mafíósa sem láta Björgólfa og Baugsfeðga blikna í samanburði. You ain´t seen nothing yet

Guðrún Sæmundsdóttir, 18.6.2010 kl. 01:09

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við stöndum í veginum og segum nei það er lýðræði!

Sigurður Haraldsson, 18.6.2010 kl. 01:43

3 identicon

Það er ótrúlegt að þjóðin skuli ekki fá að kjósa um eins mikilvægt málefni eins og ESB aðild. En það er svo sem skiljanlegt í ljósi þess að LÍÚ mafían ásamt bændamafíunni vill ekki ganga í ESB. Í staðinn þá vilja þeir viðhalda gamla góða kvótakerfinu, bændastyrkjum og sjómannaafslætti. Eins og við vitum þá eru þetta enn stærstu útflutningsfyrirtæki landsins, og hafa mikilla hagsmuna að gæta. Þau munu auðveldlega sjá til þess að við munum aldrei fá að kjósa um eitt né neitt hvað varðar ESB. Við fáum jú bara að kjósa um hluti sem skipta engu máli, eins og Icesave atkvæðagreiðslan, þar sem maður var hálfviti ef maður kaus ekki nei, þar sem betri samningur lá á borðinu. Til hamingju með sjálfstæðið íslendingar.

Bjarni (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 02:35

4 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Verðum að hafa í huga að fiskveiðar eru ekki atvinnumál hjá ESB þjóðum heldur umhverfismál, fiskveiðar, hvalveiðar og selveiðar eru tilfinningamál og er/verðar bannaðar í ESB.

Því miður er ESB klúbburinn ekki fyrir okkur sem lifum á fiskveiðum.

Sem dæmi þá þykir Dönum ekkert mál að banna grindhvalaveiðar Færeyinga, sem er hluti af menningu þeirra, til að þjóna hagsmunum ESB.   http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/06/11/faereyingar_aefir_ut_i_espersen/

Eggert Sigurbergsson, 18.6.2010 kl. 03:01

5 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

Ég tek undir með Guðrúnu Maríu, þetta er allt saman einhvern veginn öfugsnúið, að hálfa væri nóg.  Við fáum enga "sérmeðferð" hjá yfirstjórn ESB, ef við hugsum okkur betur um, af hverju ættu þeir að veita okkur sérmeðferð?

Persónulega er ég mest hræddur um það að fá ekki að kjósa um aðildina þegar á hólminn er komið, af hverju ættu Íslendingar að hætta við herlegheitin eftir að hafa eytt milljörðum í umsóknina?

Bara pæling sko...

Garðar Valur Hallfreðsson, 18.6.2010 kl. 10:27

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Garðar þetta er ekki gott mál því verðum við að grípa inní!

Sigurður Haraldsson, 21.6.2010 kl. 02:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband