Handónýt verkalýðshreyfing þessa lands í Matadorleik með lífeyrissjóðina.

Það er til skammar að ekki skuli hafa tekist í áratugi að endurskoða skipulag og framkvæmd mála varðandi vörslu fjármuna launþega í lífeyrissjóðum.

Það er fáránlegt að fimm manna stjórn eins verkalýðsfélags hafi um það sjálfdæmi að velja í stjórnir lífeyrissjóða, sem fara þar með umsýslu stórra fjármuna sem innheimtar eru samkvæmt lögum af launum launþega.

Aldrei skyldi það hafa komið til sögu að áhættufjárfestingar væru svo mikið sem á dagskrá að hálfu þeirra sem sýslað hafa með þessa fjármuni ALDREI......

Að þessir sömu aðilar skuli síðan helstu talsmenn þess að ekki sé hægt að afnema verðtryggingu í einu samfélagi vegna vörslu fjármuna í lífeyrissjóðum, sem tekið hafa þátt í áhættusömum fjárfestingum allra handa hægri vinstri með tilheyrandi tapi á markaðstorgi hlutabréfamarkaðar, meðan samið er um lúsarlaun fyrir launþega, það er sérstakt rannsóknarefni.

Margsinnis hefi ég til langtíma gagnrýnt andvaraleysi stjórnmálamanna um þessi mál, og geri enn, þar sem sannarlega er það þeirra að breyta lagaumgjörð um þessa starfshætti.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl, góður pistill hjá þér ég er þér innilega sammála, þetta er mál sem þarf miklu meiri umræðu.

kveðja

PS hvað er netfangið þitt?

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.3.2010 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband