Verður Evran lélegasti gjaldmiðillinn ?

Svo virðist sem menn séu að gera sér væntingar um eitthvað sem ekki fer í sama far og áður, eftir hrun fjármálamarkaða á alþjóðavísu.

Gefur það ekki augaleið að sams konar fjármálaumsýsla þar með talið lántökur, verða ekki á dagskrá í bili ?

Hin mikla efnahagslega samtenging sem orðið hefur til í Evrópu þar sem ólíkar forsendur hinna ýmsu þjóða eru til staðar, kunna að vera fjötur um fót til þess að treysta sama gjaldmiðil á svæðinu öllu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Hættumerki á evrusvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Guðrún.

Ég er hræddur um að þú hafir hitt þarna á rétta fyrirsögn, því það er svo margt sem bendir til þess að svo muni verða, og menn voru farnir að velta því fyrir sér..... löngu fyrir Alheimskreppuna.

Kveðja

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 02:52

2 Smámynd: Jack Daniel's

Einkennilegt að þú skulir velta þessu upp á sama tíma og Danir, Norðmenn og Svíar skuli allir tala um að kreppan hjá þeim hefði ekki slegið svona fast hefðu þeir tekið upp evru á sínum tíma.

Ættir að prófa að rýna í pólitískar fréttir af norðurlöndunum þar sem þetta er í umræðunni áður en þú fellir sleggjudóma um Evruna.

Jack Daniel's, 26.2.2010 kl. 03:02

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er kreppa í Svíþjóð, Danmörku og Noregi Jack Daníels? Segja þeir þetta einum rómi, eða er þetta úr munni einhverra einstakra evrópumæringa?

Þú ættir kannski að rýna betur ífréttirnar þínar sjálfur áður en þú ráðleggur öðrum það.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.2.2010 kl. 03:58

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Evrugenginu er haldið of háu (eins og var með gengi Íslensku krónunnar fyrir hrun).  Aðalsökudólgarnir í því eru Kínverjar, en þeir eru í alveg gríðarlegum viðskiptum við Bandaríkin en þeir telja dollarann "lélegan" gjaldmiðil og skipta öllum sínum viðskiptum í evrur, sem verður þess valdandi að gengi evrunnar verður hærra fyrir vikið.  Hversu lengi þessi trú Kínverja á evrunni varir veit enginn en þega´r þeir missa trúna eru margir sem hafa trú á að hún FALLI um minnst 20-40%.  Þetta eru fréttir með kreppu í Noregi, Svíþjóð og víðar á Norðurlöndunum, ég taldi mig fylgjast vel með en þetta hefur farið framhjá mér?

Jóhann Elíasson, 26.2.2010 kl. 09:10

5 identicon

Ekki ætla ég að fella dóma yfir einu eða öðru á Islandi þar sem ég er búsettur í Danmörku og hef verið í mörg ár. Þrátt fyrir það verð ég að segja að öll þessi umræða um Evruna er frekar neikvæð. Ég hef að eigin raun upplifað kreppuna hérna í Danaveldi og hefði komist mun betur frá ef við hefðum haft Evru í staðinn fyrir Krónuna. Þar sem ég fylgist annað slagið með fréttum á mbl.is hef ég undrað mig dálítið yfir að það komi næstum eingöngu slæmar fréttir um Eu (ESB) en svo hef ég nýlega frétt hver er orðinn ritstjóri Morgunblaðsins. Þá fór ég að skilja. Það er hreinlega verið að heilaþvo ykkur þarna á fróninu og lesendur blaðsins. Ég vona að Íslendingar séu betur gefnir en svo að það takist. Ég ætla ekki að taka tillit til inngöngu í ESB eða upptöku Evru með þessu, enda kemur mér það ekki við. Kveðja til ykkar allra og munið að halda sjálfstæðri hugsun í umræðunni.

Arni Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 09:24

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alveg er það merkilegt hvað margir,sérstaklega LANDRÁÐAFYLKINGAMENN, virðast alltaf þurfa að bendla Davíð Oddssyni við allt sem þeir telja að miður fari??????

Jóhann Elíasson, 26.2.2010 kl. 22:31

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir allir.

Upphafið að endalokum Evrópusamrunans voru og eru að mínu viti hugmyndir um stjórnarskrá sambandsins sem ríkis, en það er mín skoðun eins og annað sem ég rita um.

Hvað evruna varðar þá er allt eins líklegt að æ erfiðara verði að halda uppi þeim hinum sama gjaldmiðli með samhæfðum aðgerðum millum ólíkra þjóðríkja með misgóðar aðstæður til þess arna.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.2.2010 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband