Munu gengislánin dæmast andstæð lögum í Hæstarétti eins og Héraðsdómi ?

Niðurstaða Héraðsdóms í þessu máli er sannarlega tímamót , hvað varðar stöðu skuldara en líklegt er að málinu verði áfrýjað fyrir Hæstarétt, þar sem afar fróðlegt verður að sjá hver niðurstaða verður.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gengislánin dæmd óheimil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Hvað heldur þú,  sitja ekki bara sjálfstæðismenn í hæstarétti,

Sigurður Helgason, 13.2.2010 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Dómstólar eiga að vera hafnir yfir flokkapólítik á báðum stigum, hins vegar hefur það of mikið verið áberandi í réttarfari að of oft hefur dómum úr Héraðsdómi verið hnekkt fyrir Hæstarétti, stundum til bóta, en hvað nú verður á eftir að koma í ljós.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2010 kl. 01:11

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Eiga að vera en eru þeir það,

Dómarar valdir af ráðherra,því miður er ég löngu búinn að missa trúnna á rétlætið og Íslendinga

Sigurður Helgason, 13.2.2010 kl. 01:27

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Aldrei mun ég missa trúna á réttlætið en hins vegar veit ég það manna best að maður þarf mikla orku til þess að standa vörð um það hvarvetna á hverjum tíma, þar sem blása þarf á landamæri flokkspólítíkur í því efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2010 kl. 01:49

5 identicon

Guðrún,

  Ég held að allir viti það að Íslendingar(og sérstaklega núna) líta bara á réttlæti ef það hagnast þeim sjálfum. Kannski soldið gróft að segja þetta. 

  Samt er þetta nú soldið þannig. Menn tala um réttlæti, þegar þeim hentar til að skara eld að sinni köku. 

  Síðan eru þeir sem raunverulega þurfa réttlæti látnir sitja eftir......allavega umhugsunarefni. 

  Þetta mál kemur flokkspólitík ekkert  við. Jæja, núna er bara að vona að yfirdrátturinn sé ólöglegur. 

  Ef bílalán eru ólögleg, HVAÐ ER ÞÁ ALLT HITT!!!!!

Jóhannes (IP-tala skráð) 13.2.2010 kl. 01:56

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mín spá er að réttlæti fjármagnsins eigi meiri samkennd hjá Hæstarétti en réttlæti fólksins.

Og Jóhannes: Þetta kemur nefnilega flokkapólitík alveg heilmikið við. Það er ljóst í hug okkar sem höfum fylgst með vinnubrögðum í stjórnmálum undanfarna áratugi. Hafir þú verið erlendis þá raunatíma í íslenskri pólitík og utan þjónustusvæðis þá skaltu endilega spyrja þá sem voru viðstaddir.

Árni Gunnarsson, 13.2.2010 kl. 13:26

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ég vona að svo verði Guðrún þegar ríkisstjórnir bregðast  eru dómstólar síðasta vörnin í réttarríkinu.

Jón Magnússon, 13.2.2010 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband